HSS
HSS

Mannlíf

Miðvikudagur 23. janúar 2002 kl. 20:51

Vísismenn gefa út öryggisdagatal sjómanna

Vísir, félag skipstjórnarmanna á Suðurnesjum gaf út nú um áramótin öryggisdagatal sjómanna í fyrsta sinn. Dagatalinu hefur verið dreift í flesta stærri báta um allt land.Þröstur Ólafsson, formaður öryggismálanefndar Vísis og stýrimaður á Erni KE 14 átti hugmyndina og vann hana frá a til ö að sögn Jóhannesar Jóhannessonar, formanns Vísis.
Á mánaðardögunum á dagatalinu eru minnisatriði um öryggismál, s.s. hjálma, neyðarútganga og eldvarnartæki, björgunarhringi og fleira tengt öryggi á sjó. Sparisjóðurinn í Keflavík, Eldvarnir ehf. og Prentsmiðjan Hjá Guðjóni Ó styrkti útgáfuna á dagatalinu.
Aðalfundur félagsins var haldinn 30. des. sl. Þar var stjórin endurkjörin, formaður er Jóhannes Jóhannesson sem jafnframt er framkvæmdastjóri félagsins. Á fundinum var m.a. tilnefnt í sjómannadagsráð fyrir komandi sjómannadag í vor en þar voru kjörnir þeir Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Oddur Sæmundsson og Þorsteinn Erlingsson.
Bílakjarninn
Bílakjarninn