Mannlíf

Vísir með opið hús og minningartónleika á Sjóaranum síkáta
Vísis-systurnar Kristín, Sólný, Svanvhít Daðey og Margrét.
Fimmtudagur 28. maí 2015 kl. 07:00

Vísir með opið hús og minningartónleika á Sjóaranum síkáta

Í tilefni þess að Vísir hf. í Grindavík fagnar 50 ára afmæli ár verður fyrirtækið með glæsilega dagskrá á sjómannadeginum 7. júní á Sjóaranum síkáta. Klukkan 14 - 17 þann dag býður Vísir bæjarbúum og gestum Sjóarans síkáta að skoða fiskvinnslur fyrirtækisins undir leiðsögn eigenda. Boðið verður uppá fiskismakk, afmælisköku og lifandi tónlist. Saltfiskvinnsla fyrirtækisins hefur verið starfrækt í hálfa öld að Hafnargötu 16. Fyrirtækið er nú einnig að taka í notkun nýtt hátæknifrystihús að Miðgarði 3 til að mæta breyttum áherslum í greininni. Allir velkomnir.  

Kl. 20:00 verða Minningartónleikar um Palla og Möggu [stofnendur Vísis] í Grindavíkurkirkju. 
Jón Ólafsson tónlistarmaður stjórnar minningartónleikum um Palla og Möggu í tilefni þess að Vísir fagnar 50 ára afmæli. Þar flytja börn þeirra hárómantísk sjómannalög af nýútgefnum diski þeirra „Lögin hans pabba“.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Með þeim eru landskunnir hljóðfæraleikarar undir stjórn Vilhjálms Guðjónssonar og sérstakur gestasöngvari verður Ragnar Bjarnason. Diskurinn verður til sölu á staðnum og rennur söluandvirði hans óskipt til Grindavíkurkirkju. Frítt inn og allir velkomnir.

Frá þessu er grein á vefsíðu Grindavíkurbæjar.