Vinsælasta hljómsveit landsins í Andrews
Ein vinsælasta hljómsveit landsins í dag, Of Monsters And Men, kom fram á stórtónleikum Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem haldnir voru í Andrews-leikhúsinu á Ásbrú í gærkvöldi. Auk Of Monsters And Men kom fram Agent Fresco, sem notið hefur vaxandi vinsælda.
Um 400 manns voru á tónleikunum sem þóttu takast vel. Of Monsters And Men skrifuðu í vikunni undir útgáfusamning við útgáfufyrirtækið Universal.
Samningurinn við Universal felur í sér að frumraun sveitarinnar, My head is an animal, verður komið í dreifingu um öll Bandaríkin til að byrja með, en svo verður plötunni jafnvel dreift víðar um heimsbyggðina.
Þeir sem ekki vita deili á hljómsveitinni hafa þá sennilega ekki hlustað á útvarp síðastliðið hálft ár eða svo því lag sveitarinnar, Little talks, hefur fengið þar gríðarlega spilun. Nú er annað lag með sveitinni, King and lionheart, farið að hljóma ótt og títt á öldum ljósvakans og hefur plata sveitarinnar einnig fengið góða dóma.
Tveir tónlistarmenn af Suðurnesjum eru í framvarðasveit Of Monsters And Men en það eru þau Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona og Brynjar Leifsson gítarleikari.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi á tónleikunum í gær.