Bygg
Bygg

Mannlíf

Vinnuskóli Reykjanesbæjar opnar vefsíðu
Frá Vinnuskólanum.
Þriðjudagur 18. mars 2014 kl. 13:31

Vinnuskóli Reykjanesbæjar opnar vefsíðu

- Umsóknarferlið byrjar fyrr að ósk foreldra.

Í sumar ætlar Vinnuskóli Reykjanesbæjar að nýta sér aukna tækni og hefur opnað upplýsingasíðu og Facebooksíðu. Allir nemendur og foreldrar eru hvattir til að fylgjast með á síðunum. Í sumar verða síðurnar nýttar m.a. til að birta skemmtilegar myndir frá vinnuskólanum í samvinnu við nemendur.

Vikuna 24.-28. mars verður Vinnuskólinn kynntur í grunnskólum Reykjanesbæjar og í kjölfarið verður opnað fyrir umsóknir nemenda, eða þann 4. apríl. Það er óvenju snemma en gert til að mæta óskum foreldra, sem margir eru byrjaðir að skipuleggja sumarið fyrir fjölskylduna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þegar er búið er að opna fyrir umsóknir í sumarstörf garðyrkjudeildar og vinnuskóla. Leitað er að flokkstjórum, yfirflokkstjórum og starfsmönnum í garðyrkjudeild.

Umsóknir um laus störf má finna á vefsíðu Reykjanesbæjar, undir „laus störf“ og er minnt á að allar eldri umsóknir þarf að endurnýja.