Vinnuskólanum slitið í Reykjanesbæ
Vinnuskóla Reykjanesbæjar var slitið með formlegum hætti sl. föstudag og af því tilefni var síðasta hópnum boðið til hvalaskoðunarferðar með Moby Dick.
Alls störfuðu 390 unglingar í 8. - 10. bekk í Vinnuskólanum í sumar sem er svipaður fjöldi og verið hefur.
Helstu verkefni ungmennanna voru tyrfing, snyrting beða og sláttur.
Nemendurnir gerðu sér glaðan dag og voru svo heppnir að sjá hrefnum bregða fyrir. Að lokinni sjóferð lá leiðin í 88 Húsið þar sem boðið var upp á pizzu.
Af vef Reykjanesbæjar