Vinningshafar í ljósmyndamaraþoni
Bókasafn Reykjanesbæjar og félagsmiðstöðin Fjörheimar héldu ljósmyndamaraþon fyrir unglinga í 9. og 10. bekk laugardaginn 11. maí sl.
Alls tóku 6 unglingar úr Reykjanesbæ þátt og má sjá afraksturinn á Bókasafni Reykjanesbæjar.Þrenn verðlaun voru veitt, fyrir bestu filmu í heild, frumlegustu mynd og bestu útfærslu. Helgi Arason tók bestu filmuna, Sverrir Örn Leifsson átti frumlegustu myndina og Tinna Rósantsdóttir bestu útfærsluna.
Helgi fékk að launum Leica myndavél en Sverrir og Tinna fengu 5.000 kr. innlegg á Start reikning hjá Sparisjóðnum í Keflavík.
Styrtkaraðilar ljósmyndamaraþonsins voru: Hitaveita Suðurnesja, Sparisjóðurinn í Keflavík og Myndafólk.
Frétt frá Reykjanesbæ á Netinu.