Mannlíf

Vinabæjarljósin tendruð í 56. sinn
Unga fólkið í bænum fylgdist spennt með ræðuhaldinu.
Mánudagur 11. desember 2017 kl. 10:44

Vinabæjarljósin tendruð í 56. sinn

Ómissandi þáttur í jólaundirbúningi í Reykjanesbæ er tendrun ljósanna á vinabæjarjólatrénu frá Kristiansand en þetta var í 56. skipti sem bæjarbúar þiggja tré að gjöf frá vinabænum í Noregi. Tekið var á móti gestum í skrúðgarðinum með lifandi lúðrablæstri nemenda úr blásarasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Sendiherra Noregs á Íslandi afhenti tréð og fulltrúi Norræna félagsins í Kristiansand flutti kveðju frá bæjarstjóra Kristiansand. Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar veitti trénu viðtöku og nemandi úr Myllubakkaskóla sá um að tendra ljósin.

Sólborg Guðbrandsdóttir tók meðfylgjandi myndir við athöfnina.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Jólatré í Reykjanesbæ

Bílakjarninn
Bílakjarninn