Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Viltu ganga á Fagradalsfjall?
Þriðjudagur 23. júlí 2013 kl. 09:59

Viltu ganga á Fagradalsfjall?

Á morgun miðvikudaginn 24. júlí bjóða Reykjanesgönguferðir upp á göngu á Fagradalsfjall. Gangan hefst við fjallið Slögu. Genginn verður vegslóði sem liggur inn í Nátthaga. Þaðan verður gengið upp Langahrygg og Stóri-Hrútur klifinn (353 m) fyrir þá sem vilja. Stóri-Hrútur sést vel frá Reykjanesbraut rétt austan við Keili. Þaðan er haldið eftir austurbrún Fagradalsfjalls að Langhól (391 m) þar sem fjallið rís hæst. Á leiðinni til baka verður haldið suður eftir fjallinu að upphafsstað.

Athugið tímasetninguna! Lagt verður af stað kl 17:00 frá Vesturbraut 12 Reykjanesbæ

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Gangan tekur 6-7 klst og er við hæfi allra þeirra sem treysta sér í nokkuð krefjandi fjallgöngu.
Kostnaður kr 1500 frítt fyrir 12 ára og yngri. Leiðsögumaður er Rannveig Garðarsdóttir og eru allir velkomnir.

Fyrir göngufólk af Höfuðborgarsvæðinu er hægt að hitta rútuna við Grindavíkurafleggjara en nauðsynlegt að hringja í Rannveigu til að tilkynna fjölda í síma 893 8900.