Villi og Óskar fengu Lundann 2002
Þeir Vilhjálmur Þorleifsson og Óskar Ívarsson fengu afhenta viðurkenninguna Lundann 2002 í hófi sem Kiwanisklúbburinn Keilir hélt í Keflavík um helgina. Þeir hafa starfað hjá áhaldahúsi Keflavíkur og síðar Reykjanesbæjar til fjölda ára og hreinsunarstarf verið ofarlega á verklista þeirra félaga.Sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf í þágu bæjarbúa fengu þeir Vilhjálmur og Óskar uppstoppaða lunda með áletrun. Einnig var þeim afhent skjal þessu til staðfestingar. Lundinn verður hér eftir afhentur árlega sem viðurkenning fyrir þjóðþrifamál í Reykjanesbæ.
Myndin: Villi og Óskar með viðurkenningar sínar og lundana góðu. VF-mynd: Páll Ketilsson
Myndin: Villi og Óskar með viðurkenningar sínar og lundana góðu. VF-mynd: Páll Ketilsson