Bygg
Bygg

Mannlíf

Miðvikudagur 12. desember 2001 kl. 09:49

Vilji og dugnaður er allt sem þarf

Sjálfsbjargarfélagar á Suðurnesjum fögnuðu 40 ára afmæli félagsins sl. sunnudag. Þar var margt um manninn, dýrindis tertur á borðum og skemmtiatriðin voru lífleg, en stúlkur frá Jazzdansskóla Emilíu sýndu listir sínar.
Arnór Pétursson, formaður Sjálfsbjargar, landsambands fatlaðra hélt ræðu í tilefni dagsins. „Fötlun spyr ekki um aldur, stöðu eða fjölskyldu. Þannig er ekkert lögmál sem stýrir því hverjir fæðast fatlaðir eða fatlast vegna veikinda eða slysa á lífsleiðinni, eða hvenær, hvar og á hvaða aldri fólk fatlast“, sagði Arnór og þakkaði um leið Sjálfsbjörg og fólkinu sem þar er innanborðs fyrir frábært starf í áranna rás, en sjálfur fatlaðist hann fyrir 30 árum síðan, þá ungur maður. Arnór nefndi Friðrik Ársæl sérstaklega í ræðu sinni og talaði um að hann hefði skapað sér og fleiri fötluðum einstaklingum gott fordæmi, sýnt hvernig fatlaður einstaklingur getur skapað sér þokkalegt líf og lífsviðurværi ef fer saman vilji, dugnaður og ákveðni. Arnór færði félaginu á Suðurnesjum fána félagsins í lokin en hann verður hengdur upp í Sjálfsbjargarhúsinu við Fitjabakka í Njarðvík.
Bílakjarninn
Bílakjarninn