Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

„Vil að Garðbúar standi saman burtséð frá flokkapólitík“
Fimmtudagur 10. ágúst 2006 kl. 15:58

„Vil að Garðbúar standi saman burtséð frá flokkapólitík“

Oddný Guðbjörg Harðardóttir er fæddur og uppalinn Garðbúi og hefur frá því nú í sumar vermt bæjarstjórastólinn í Garði. Víkurfréttir tóku hana tali og komust að því að hún hefur í nógu að snúast sem bæjarstýra.

 

Góð menntun grundvallaratriði fyrir bæjarfélagið

„Áherslan hjá okkur í N-listanum í kosningunum var á  skólamálin og í haust munu allir umsjónakennarar í grunnskólanum fá fartölvu og allar kennslustofurnar verða útbúnar með skjávarpa. Markmiðið er að ná betur til nemendanna og notkun skjávarpa býður  uppá fjölbreyttari og líflegri kennsluaðferðir. Góðir skólar og góð menntun er grundvallaratriði fyrir bæjarfélagið, það gagnast öllum bæði núna og í framtíðinni og það laðar fólk að bænum,“ segir Oddný.

 

Margt sameiginlegt með skólastjóra- og bæjarstjórastarfi

Oddný var aðstoðarskólameistari í Fjölbrautarskóla Suðurnesja um árabil og skólameistari árið 2005 og segir hún að finna megi margt sameiginlegt með starfi hennar þar og bæjarstjórastarfinu. „Það er nú óneitanlega þægilegra að geta hjólað í vinnuna,“ segir Oddný og brosir. Hún fæddist í Garðinum og eftir að hafa búið í nokkur ár á Snæfellsnesi sem barn og í Reykjavík þar sem hún var við nám og eftir að hafa kennt í Rangárvallarsýslu í þrjú ár fluttist hún aftur í Garðinn árið 1983. Eiginmaður Oddnýjar er Eiríkur Hermannsson, fræðslustjóri í Reykjanesbæ, og eiga þau saman dæturnar Ástu Björk og Ingu Lilju. Þær verða báðar í námi við Háskólann í Reykjavík í haust, Ásta á þriðja ári í lögfræði og Inga á fyrsta ári heilbrigðisverkfræði.

 

Samstarf við önnur sveitarfélög um atvinnumál

Síðan Oddný tók til starfa hefur hún meðal annars unnið að bráðabirgðauppgjöri fyrir fyrri helming þessa árs fyrir Garðinn og fjármálin hafa tekið mikinn tíma undanfarnar vikur. Atvinnumálin eru líka í brennidepli og Garðurinn er í samstarfi við Sandgerði og Reykjanesbæ varðandi atvinnutækifæri í Helguvík og kringum Keflavíkurflugvöll. „Í öðrum málum, s.s. umhverfismálum er unnið að stefnumótun því í mörgum málum  vantar stefnumörkun hjá bænum. Með því að hafa skýrt afmarkaða stefnu getum við búið til aðgerðaröð og þannig sparað tíma og peninga. Þá getum við líka hagað því þannig að við séum ekki bara að bregðast við vandamálunum þegar þau koma upp heldur horft fram á veginn séð hvar peningarnir eru best nýttir,“ segir Oddný.

 

Aukið íbúalýðræði

Bæjarstjórnin vinnur að hagsmunum allra íbúa Garðsins og vill auka íbúalýðræði. „Í haust verða haldnir fundir fyrir alla Garðbúa þar sem málefni verða kynnt og íbúum  gefinn kostur á að setja fram athugasemdir og ábendingar. Við leggjum mikla áherslu á að við Garðbúar stöndum saman og myndum sterka liðsheild burtséð frá flokkapólitík.“

 

Viðtal: Magnús Sveinn Jónsson

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024