Víkingaheimar á mörgum tungumálum
Top Choice hjá Lonely Planet
Víkingaheimar eru nú vel í stakk búnir til að taka á móti ferðamannastraumnum sem þegar er hafinn af fullum þunga. Í kjölfar endurnýjunar á sýningum í Víkingaheimum eru nú allar sýningarnar á fjórum tungumálum og sumar á sex þar sem þær hafa nú verið þýddar á ensku, þýsku og frönsku auk þess sem tvær sýninganna eru að auki þýddar á norðurlandamál. Nýverið útnefndi ferðatímaritið Lonely Planet Víkingaheima sem Top Choice eða „fyrsta valkost“ í nýútkominni Íslandsbók sinni, sem eru frábær meðmæli.
Gestum Víkingaheima fer nú mjög fjölgandi og Sveinn Björgvinsson umsjónarmaður hússins segir gesti einkar ánægða með að geta nú fræðst um sýningarnar á eigin tungu. Alls eru fimm sýningar í húsinu, Örlög guðanna – sýning um norræna goðafræði, Landnám á Íslandi, Víkingar N-Atlantshafsins, Víkingaskipið Íslendingur og Söguslóðir á Íslandi.
Víkingaheimar eru opnir alla daga í sumar frá kl. 11.00 – 18.00. Nánari upplýsingar á vikingaheimar.is.