VIGT sýndi á HönnunarMars
„Við vorum að sýna nýja hönnun frá VIGT og settum upp sýningu í samstarfi við aðra aðila undir yfirskriftinni Af jörðu,“ segir Guðfinna Magnúsdóttir, ljósmyndari og einn eigenda VIGT í Grindavík.
VIGT er hönnunarfyrirtæki í Grindavík, stofnað árið 2013 af mæðgunum Huldu Halldórsdóttur og dætrunum Örnu, Hrefnu og Guðfinnu Magnúsdætrum. Faðirinn, Magnús, er eigandi trésmíðaverkstæðisins Grindarinnar en það fyrirtæki var stofnað árið 1979 og hefur ætíð verið farsælt.
VIGT tók þátt í HönnunarMars í síðustu viku en um er að ræða hönnunarhátíð á Íslandi þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti. HönnunarMars boðar nýjungar og óvænta nálgun, hátíðin er haldin árlega og er alltaf lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, er í raun hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið. Eflaust kemur einhverjum spánskt fyrir sjónir að þessi hátíð heiti HönnunarMars þar sem maímánuður er nýlega genginn í garð en vegna COVID þurfti að færa dagsetninguna til í fyrra og var ákveðið að halda hana ári síðar en halda sig við nafnið.
Guðfinna fór yfir sögu VIGT og hvernig gekk. „Við mæðgurnar stofnuðum VIGT árið 2013, við höfum allar verið viðloðandi fyrirtækið Grindina sem afi, Guðmundur Ó. Ívarsson, pabbi og bróðir hans, Kalli stofnuðu. Kannski mætti segja að uppruni okkar sé þaðan, við ólumst upp við að skoða byggingasvæði á sunnudagsrúntum og hlustuðum á smíðatal inni á heimilinu á hverjum degi. Við sáum tækifæri í að nýta þekkingu og reynslu, tækjakost verkstæðisins og það efni sem til fellur þar. Okkur langaði að hanna og framleiða húsgögn og minni fylgihluti inn á heimilið og létum slag standa. Við tökum þátt í öllu ferlinu, frá hugmynd og hönnun til framleiðslu og dreifingar. Þetta hefur vaxið og dafnað ár frá ári og ég held að framtíð okkar sé björt.
Við tókum þátt í HönnunarMars í fyrsta sinn í fyrra og ákváðum að vera aftur með í ár. Við vorum að sýna nýja hönnun frá okkur sem er unnin í samvinnu við Granítsmiðjuna, sem sérhæfir sig í steinsmíði. Sýningin var uppsett með VESSEL og GRAEN studios og bar yfirskriftina „Af jörðu“. Þarna var okkar hönnun og VESSEL í brennidepli en VESSEL sérhæfir sig í plöntum og gerð grasagarða (e. Terrarium) fyrir heimili og vinnustaði.“
Leki í húsnæði, góð ráð dýr
Það munaði minnstu að illa hefði farið. „Við ætluðum að sýna á Laugaveginum þar sem Epal er með verslun og gallerý. Gallerýið er á neðri hæðinni og nokkrum dögum fyrir sýninguna kom upp vatnstjón svo við urðum að finna nýtt húsnæði. Til allrar hamingju gátum við leigt tómt verslunarhúsnæði á Hverfisgötu, þar sem verslunin Húrra Reykjavík var eitt sinn, og við rétt náðum að stilla sýningunni upp áður en HönnunarMars hófst síðasta miðvikudag. Það var mjög mikil umferð alla dagana og við vorum ánægðar með viðtökurnar. Við fengum DJBumbleBeeBrothers til að bjóða upp á ljúfa tóna á opnunarhófinu og ég myndi segja að stemmningin og andrúmsloftið hafi verið mjög gott alla dagana. Þessi sýning er ekki hugsuð sem eiginleg sölusýning en það sáir frækornum að taka þátt og er góð kynning á okkar vörumerki,“ sagði Guðfinna að lokum.