Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Vignir og Hreimur skemmta í Jónsmessugöngu á laugardagskvöldið á Þorbjarnarfelli
Þriðjudagur 21. júní 2011 kl. 11:02

Vignir og Hreimur skemmta í Jónsmessugöngu á laugardagskvöldið á Þorbjarnarfelli

- Sætaferðir frá BSÍ og Reykjanesbæ

Laugardagskvöldið 25. júní býður Bláa Lónið og Grindavíkurbær upp á hina árlegu Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn. Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hér er um að ræða skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Lagt verður af stað gangandi frá sundlaug Grindavíkur kl. 20:30 og er áætlað að ferðin taki um þrjár klukkustundir. Hópstjóri verður með í för. Allir eru á eigin ábyrgð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Vignir og Hreimur (vinir Sjonna) munu skemmta með söng og spili við varðeld á fjallinu og einnig í Bláa Lóninu þar sem gangan endar.


Enginn þátttökukostnaður er í gönguna en þátttakendur greiða aðgang í Bláa lónið. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig í Vinaklúbb Bláa Lónsins og fá þá sérkjör í Bláa Lónið: Aðeins 1950 kr aðgangseyri. Skráning í Vinaklúbbinn er ókeypis.


Bláa Lónið er opið óvenju lengi þetta kvöld eða til klukkan 24:00.


Kynnisferðir verða með sætaferðir til Grindavíkur frá BSÍ klukkan 19:30 og SBK frá Reykjanesbæ kl. 20:00. Sætaferðir frá Bláa Lóninu verða til Grindavíkur kl. 00:30 og Reykjanesbæjar og Reykjavíkur kl. 01:00.