Video: Sigurlag Helenu
Sigurlagið sem Helena Rós Þórólfsdóttir söng í söngvakeppninni Hljóðnemanum sem fór fram í Andrew´s Theater á Vallarheiði í gærkvöldi er komið inn á Vefsjónvarp Víkurfrétta hér á vf.is. Helena Rós söng lagið Everytime sem Britney nokkur Spears söng á sínum tíma.
Í öðru sæti varð Ólína Ýr Björnsdóttir með lag hljómsveitarinnar Goo Goo Dolls, Iris. Hljómsveitin Reason To Believe tók síðan þriðja sætið með laginu Everytime I Look For You með pönk-rokksveitinni Blink 182.
Smellið á Sjónvarp Víkurfrétta til að skoða myndbönd dagsins.