Viðar segir frá safni hreyfimynda í Bíósal Duushúsa
Viðar Oddgeirsson kvikmyndatökumaður mun á morgun, miðvikudaginn 4. febrúar, koma í heimsókn í bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ og segja frá safni hreyfimynda sem hann hefur unnið að síðastliðin 30 ár í samvinnu við Byggðasafnið. Hann fer yfir söguna og sýnir safnið með myndbrotum á tjaldinu.
Viðburðurinn hefst k. 17:30, aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.