Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Við munum tímana tvenna
Á sýningunni er farið yfir tildrög og sögu safnsins, en ekki síður er vakin athygli á mikilvægu starfi Byggðasafnsins í veröld og samfélagi sem breytist ört.
Fimmtudagur 15. nóvember 2018 kl. 10:02

Við munum tímana tvenna

40 ár liðin frá stofnun Byggðasafns Reykjanesbæjar

Við munum tímana tvenna er nafn á sýningu sem sett er upp í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá stofnun Byggðasafns Reykjanesbæjar.
 
Sýningin er sett upp til að minnast þess að nú eru 40 ár liðin frá því að bæjarstjórnir Njarðvíkur og Keflavíkur ákváðu að setja sameiginlega á stofn byggðasafn.

Á sýningunni er farið yfir tildrög og sögu safnsins, en ekki síður er vakin athygli á mikilvægu starfi Byggðasafnsins í veröld og samfélagi sem breytist ört. Það fennir fljótt í sporin, en hlutverk Byggðasafnsins er að muna tímana tvenna og halda utan um söguna og fræða nútímann og komandi kynslóðir um fortíðina.

Reykjanesbær býr yfir sérstæðri sögu, þar sem einmitt má greina afar skörp skil á milli tveggja tíma; annars vegar höfum við fiskibæina sem byggðu allt sitt á fangbrögðum við hafið og hins vegar langa sögu varnarliðs sem nágranna innan girðingar og uppbyggingu alþjóðaflugvallar.

Sýningarstjóri er Eiríkur Páll Jörundsson forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024