VF-unglingur vikunnar: Rúnar Ingi Erlingsson

Skóli: Ég er að fara í FS á Afreksmannabraut FS og Íþróttaakademíunnar.
Happatala: 9
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Æfirðu einhverja íþrótt? Körfubolta.
Uppáhalds lag þessa stundina: Hope There´s Someone með Anthony and the Johnsons.
Ertu oft á msn? Já það má nú segja það :)
Hvað mundirðu kaupa þér ef þú ættir að eyða 1000 kr.? Ég myndi kaupa mér inneign.
Hvert fórstu um verslunarmannahelgina? Ég var á Spáni, að keppa með U16 ára landsliðinu í körfubolta.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Að tapa, gjörsamlega hata það.
Skemmtilegasta sem þú gerir? Að vera með vinum mínum og spila körfubolta.
Uppáhalds kvikmynd? The Bone Collector
Hvað er það fyrsta sem kemur í hugann þegar þú vaknar á morgnanna? Tilhlökkun til að byrja borða morgunmat :P
Uppáhalds hlutur? Rúmið mitt og Sængin..
Besti matur? Grjónagrautur og Kjúklingur
Foo Fighters eða 50 cent? Foo Fighters án vafa.
Röndótt eða doppótt? Röndótt
Sterkt eða súrt? Sterkt
Fear Factor eða Amazing Race? Amazing Race
Sjónvarpið eða tölvan? Bæði gott en sjónvarpið betra.
Skriðsund eða bringusund? Bringusund, verð alltof þreyttur í skriðinu.
Hamborgari eða pizza? Hamborgari.