HSS
HSS

Mannlíf

VF 2004: Söng Bláu augun í Sólbrekkuskógi
Sunnudagur 7. mars 2021 kl. 06:20

VF 2004: Söng Bláu augun í Sólbrekkuskógi

Sólbrekkuskógur var á laugardag opnaður almenningi með formlegum hætti í átaki sem Skógræktarfélag Íslands stendur í samstarfi við Olís og Alcan. Við opnunina mætti Rúnar Júlíusson með kassagítarinn og söng nokkur gömul og góð lög. Hann endaði siðan á því að syngja Bláu augun og undir var tekið í skóginum.

Það var Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra sem opnaði skóginn í Sólbrekkum formlega með flugeldasýningu, sem mun vera einsdæmi við skógaropnun hér á landi og erlendis, enda fara flugeldar og skógur ekki vel saman. Sólbrekkuskógur er í umsjón Skógræktarfélags Suðurnesja.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

VF.is birtir eldra efni af síðum Víkurfrétta sem fögnuðu nýlega 40 ára útgáfuafmæli. Meðfylgjandi grein birtist 9. september  2004.