Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

VF 2004: Snákur á götu í Grindavík
Snákurinn og Risa-Tópasinn.
Laugardagur 6. mars 2021 kl. 06:50

VF 2004: Snákur á götu í Grindavík

Þegar heitt er í veðri fara allskyns dýr á kreik en svo varð raunin í Grindavík. Lögreglan fékk tilkynningu um „lausaskrið“ snáks fyrir utan hús eitt í Grindavík. Lögreglan fór á staðinn og handsömuðu snákinn en um var að ræða 40 cm langan snák, brúnan og rauðan að lit. Snákurinn var afhentur Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja til aflífunar.

Snákurinn fannst á vappinu við Hjólbarðaverkstæði í Grindavík en ekki er vitað hver átti skepnuna. Hann getur hafa komið með vörusendingu í gámi eða sloppið úr búri frá eiganda sínum. Lögreglan vill taka það fram að innflutningur á snákum er stranglega bannaður hér á landi og ef slíkt á sér stað og upp kemst um dýrin þá eru þau strax aflífuð og þeim eytt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndari Víkurfrétta af snáknum og notaði Risa Tópas til þess að bera saman við skepnuna.

VF.is birtir eldra efni af síðum Víkurfrétta sem fögnuðu nýlega 40 ára útgáfuafmæli. Meðfylgjandi grein birtist 19. ágúst 2004.