HSS
HSS

Mannlíf

Vetrarstarf Kvenfélags Keflavíkur að hefjast
Mánudagur 26. september 2005 kl. 14:57

Vetrarstarf Kvenfélags Keflavíkur að hefjast

Kæru konur. Nú er að hefjast vetrarstarf Kvenfélags Keflavíkur 3.okt. Kvenfélagið hefur starfað í rúm 60 ár og látið margt gott af sér leiða, mig langar aðeins til þess að segja ykkur hvað við gerum þann tíma sem Kvenfélagið starfar.

Alltaf eru fundir 1. mánudag í hverjum mánuði nema janúar þá er frí, en svo er í febrúar og aðalfundur í mars, þá er kosið til formanns til tveggja ára gjaldkera og ritara og fjórir eru í meðstjórn. Þá er ferða- og fjáröflunarnefnd, líknarnefnd, skemmtinefnd fyrir fundi og jólakortanefnd. Við höfum alltaf kaffisölu á 17 júní og er hún vel sótt, það er alltaf kosin kona sem skipuleggur það kaffi og velur með sér konur til aðstoðar. Eins er hið vinsæla aðventukaffi aldraða sem verður fjölsóttara með hverju árinu sem líður. Við fáum alltaf listakonu til þess að gera mynd á jólakortið okkar við höfum verið svo heppnar að listakonur hér í bæ eru á hverju strái svo við höfum ekki þurft að leita út fyrir bæinn okkar.

Við reynum að fara í leikhús einu sinni að vetri. Í desember höfum við jólafund með öllu tilheyrandi. Maífundur sem er hattafundur mætum við allar með hatta, borðum góðan mat og skemmtum okkur. Svo er farið í óvissuferð og reynt að hafa þá ferð í kringum 19.júní og er sú ferð mjög svo vinsæl. Einu sinni til þrisvar á vetri fáum við til okkar fyrirlesara með fróðlegt efni, oft erum við með ýmiskonar námskeið, s.s bútasaum og föndurnámskeið og fleira.

Síðasta verkefni okkar í vor var að búa til tíu dúkkur fyrir unicef og verða þær seldar og rennur ágóði þeirrar sölu til fátækra barna í Afríku. Þau eru afar mörg þau málefni sem Kvenfélagið hefur látið til sín taka í gegnum árin, má þar nefna að við höfum stutt afar vel við bak sjúkrahússins og ekki hefur kirkjan orðið útundan fyrir utan alla þá styrki og smærri gjafir sem við gefum ár hvert, líknarsjóður úthlutar fyrir hver jól styrkjum til þeirra sem á þurfa að halda.

Eitt er það sem okkur vantar í þetta félag eru ungar konur, sem gætu komið með nýjar hugmyndir og ferskan anda í kvenfélagið, og miðlað okkur þessum eldri að því sem við hafið í farteskinu, já ungar konur er það sem okkur vantar. Hver einasta kona sem starfað hefur í Kvenfélaginu getur verið stolt af því sem á hefur unnist. Hvet ég konur í Reykjanesbæ til þess að koma á fund, kynna sér starfið rabbað við öndvegis konur sem hafa haldið þessu félagi uppi í gegnum árin. Kvenfélagið í Garðabæ og Kvenfélagið í Garði eru afar virk félög og eru þau full af ungum konum.

Ég hef spurt margar ungar konur af hverju ekki að koma og vera í kvenfélagi, fæ ég alltaf sama svarið, æ ég nenni ekki alltaf að vera að baka, ég veit ekki hver hefur komið þessu bakstursorði á kvenfélögin en það er af og frá að þar séu rekin bakarí.

Fyrsti fundur í haust er 3. okt klukkan 20:30 í Rauða krosshúsinu að Iðavöllum. Konur á öllum aldri komið og kynnið ykkur það sem við erum að gera og ætlum að gera í vetur. Hlakka til að sjá ykkur allar og vera með ykkur í vetur í leik og starfi. Velkomnar.

fh stjórnar Kvenfélags Keflavíkur
Helga Valdimarsdóttir.

Mynd úr félagsstarfi Kvenfélags Keflavíkur
Bílakjarninn
Bílakjarninn