Verk Eggerts Guðmundssonar í Bíósal Duushúsa
Á Ljósanótt verður opnuð sýning á verkum Eggerts Guðmundssonar, listmálara, í Bíósal Duushúsa. Verkin á sýningunni eru fjölbreytt að efnisvali; olíuverk, teikningar o.fl. en verkin eiga það sammerkt að flest þeirra eru í eigu bæjarbúa sjálfra. Fjölskylda Eggerts lánaði líka nokkur verk og einnig hafa bæði Listasafn Íslands og Listasafn Reykjanesbæjar lánað verk. Sýningin er ekki eiginleg yfirlitssýning en sýnir gott úrval verka hans.
Eggert Guðmundsson var fæddur í Stapakoti í Innri-Njarðvík, árið 1906. Eggert var vinsæll málari og hélt fjölda sýninga bæði hér á Íslandi og erlendis. Sýningin í Duushúsum mun standa til 27. september.