Verðmæti vinninga vel á annað hundrað þúsund
Instagram á Ljósanótt #ljosanott2014
Reykjanesbær og Víkurfréttir standa aftur fyrir skemmtilegum ljósmyndaleik í tengslum við Ljósanótt þar sem snjallsíminn getur fært fólki glæsilega vinninga. Sporthúsið gefur vinninga að verðmæti tæplega 100 þúsund krónur, en einnig er glæsileg spjaldtölva frá Nýherja í vinning, úttekt hjá Nettó og árskort í Sundmiðstöðina við Sunnubraut. Það er því til mikils að vinna og um að gera að vera með.
Nú leitum við til bæjarbúa og gesta til þess að fanga andrúmsloftið á einni glæsilegustu bæjarhátíð landins með ljósmyndum. Það eina sem þú þarf að gera er að merkja myndina þína frá hátíðarhöldunum #ljosanott2014 á ljósmyndaforritinu Instagram. Myndin þarf á sem bestan hátt að fanga stemninguna á Ljósanótt og að sjálfsögðu skemmir ekki að myndin sé falleg og frumleg. Vinningshafar verða birtir í Víkurfréttum þann 11. september. Myndir verða einnig birtar á vefsíðu Víkurfrétta vf.is á meðan Ljósanótt stendur yfir.
1. verðlaun - Sex mánaða kort í Sporthúsið á Ásbrú að verðmæti 49.990 kr. IdeaTab A7600 spjaldtölva frá Lenovo frá Nýherja að verðmæti 35 þús. Spræk og skemmtileg spjaldtölva sem hentar vel í alla afspilun og leiki.
2.verðlaun - Þriggja mánaða kort í Sporthúsið á Ásbrú að verðmæti 29.990 kr. Árskort í Sundmiðstöð/Vatnaveröld Sunnubraut að verðmæti 22. þús.
3. verðlaun - 15 þúsund kr. inneign í Netto Krossmóa. Eins mánaðar kort í Sporthúsið á Ásbrú að verðmæti 13.990 kr.
Þeir hjá Sporthúsinu eru þekktir fyrir rausnarlegar gjafir.