Verðlaunagarðar Reykjanesbæjar árið 2012
Skemmtileg hefð hefur skapast fyrir því að veita viðurkenningu þeim sem af stakri prýði sinna umhverfi sínu og þannig fegra bæinn. Mikill tími og kostnaður getur farið í að sinna stórum heimagarði og margir sem sinna görðunum sínum vel og eru til fyrirmyndar. Íbúar eiga þakkir skilið fyrir fjölda tilnefninga og fyrir löngu búið að sýna það og sanna að gróður vex vel og dafnar hér suður með sjó.
Í síðasta tölublaði Víkurfrétta var myndum af görðum víxlað og Freyjuvellir 6 voru sagðir vera Langholt 4
og öfugt. Það leiðréttist hér með og er beðist velvirðingar á þessum mistökum.
Viðurkenningar hlutu að þessu sinni:
Hafnargata 42, fyrir vel uppgert eldra hús.
Eigendur: Svavar Garðar Garðarsson og Guðlaug Björnsdóttir
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fyrir fallegan innri garð.
Eigandi: Ríkissjóður Íslands
Borgarvegur 1, fyrir góða samþættingu á nýjum palli og eldri gróðri.
Eigendur: Jónas Jóhannesson og Erla Hildur Jónsdóttir
Hraundalur 1, fyrir snyrtilegan og vel hirtan garð.
Eigendur: Jón Gunnarsson og Guðrún Gunnarsdóttir
Freyjuvellir 6, fyrir vel hannaðan og fallegan garð.
Eigendur: Þórunn Benediktsdóttir og Hannes Friðriksson
Heimavellir 13, fyrir góða samþættingu á villtri náttúru og fallegum heimagarði.
Eigendur: Ásgeir Eiríksson og Ólöf Jónsdóttir