Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Mannlíf

Verðlaun veitt fyrir eldvarnargetraun
Fimmtudagur 9. febrúar 2006 kl. 14:36

Verðlaun veitt fyrir eldvarnargetraun

Dregnir hafa verið út verðlaunahafar í tveimur grunnskólum á Suðurnesjum sem þátt tóku í eldvarnargetraun í tengslum við brunavarnarátak sem staðið var að í grunnskólum landsins í nóvember síðastliðnum.

Í Gerðaskóla var það Árni Gunnar Þorsteinsson sem hreppti vinninginn en Stefán Hlífar Gunnarsson í Holtaskóla og hlutu vinningshafarnir m.a. forláta MP3 spilara og reykskynjara sem Jón Gunnlaugsson og Hjörleifur Ingólfsson frá Brunavörnum Suðurnesja afhentu.
Getraun þessi er samstarfsverkefni Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna og grunnskólanna.


Mynd: Stefán Hlífar Gunnarsson tók við verðlaununum í Holtaskóla.

Nánar í næstu Víkurfréttum.
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25