Verðlaun fyrir gönguferðir

Verðlaun verða veitt í tveim flokkum.
1. flokkur. Veitt eru þrenn verðlaun þeim sem fara flestar gönguleiðirnar á kortinu sem eru merktar frá 1-23. Verðlaunin eru GPS staðsetningartæki. Ef margir eru jafnir í þessum flokki verður dregið á milli þeirra.
2. flokkur. Veitt eru þrenn verðlaun fyrir að hafa notað kortið eittvað. Verðlaunin eru búnaður til gönguferða. Þeir sem skila inn undir þessum flokki verða allir dregnir úr einum sameiginlegum potti.
Til að teljast þátttakandi þarf að skila inn stuttri greinargerð með mynd af sér eða hópi við viðkomandi stað eða gönguleið sem merkt er á kortið. Gaman væri einnig að fá ferðasögu.
Þátttakendur skili gögnum til:
Ferðamálasamtök Suðurnesja, Kjarrmóa 3, Reykjanesbæ.
Einnig má skila inn á e-mail : [email protected].
Skilafrestur er til 30. september 2004 og verða úrslitin tilkynnt fljótlega eftir það.
Fólk er hvatt til að undirbúa gönguferðir sínar vel með hjálp kortsins, og reyna að áætla ferðatímann og vera vel búin. Merktu gönguleiðirnar á kortinu eru við flestra hæfi þó alltaf bera að fara varlega.
Góða ferð og góða skemmtun.
Ferðamálasamtök Suðurnesja