Vel mætt í páskagöngu Bláa Lónsins
Hin árlega menningar- og söguganga Grindavíkurbæjar og Bláa Lónsins á öðrum degi páska undir stjórn Sigrúnar Jónsdóttur Franklín tókst ljómandi vel fyrir votviðri og rok. Hvorki fleiri né færri en 145 manns mættu í gönguna.
Gengið var um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól, farið með Skipstíg sem er forn þjóðleið. Þá var gengið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar voru þjófaslóðir skoðaðar og hin gömlu sel Grindvíkinga. Þá var gengið yfir að svæði Hitaveitu Suðurnesja og svo endað í Bláa Lóninu þar sem boðið var upp á sérkjör fyrir göngugarpa.
Meðfylgjandi myndir og upphafleg frétt eru af vefsíðu Grindavíkurbæjar.