Vel lukkað konukvöld Húsasmiðjunnar og Blómavals
Húsasmiðjan og Blómaval héldu konukvöld á dögunum sem gekk alveg ljómandi vel að söghn Einars L Ragnarssonar rekstrarstjóra Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ. Um 270 konur mættu í boðið.
Lifandi tónlist, frábær humarsúpa og heimabakað brauð ásamt ilmandi kaffi frá Kaffitár var á boðstólnum og hægt var að gera góð kaup þar sem góður afsláttur var af öllum vörum.
Húsasmiðju- og Blómavalsfólk var mjög ánægt með góða mætingu og hvað allar komu með góða skapið, segir Einar.