Bygg
Bygg

Mannlíf

Laugardagur 14. febrúar 2004 kl. 10:18

Vel lukkað hryllingskvöld í 88 Húsinu

HRYLLINGSKVÖLD 88 Hússins var haldið föstudaginn 13. febrúar sl. Þar var horft á japönsku útgáfuna af The Ring og myndina Darkness Falls. Stemningin var virkilega góð og um 60 manns komu í húsið þetta kvöld. Húsráð og starfsmenn höfðu skreytt efri hæð hússins til að búa til hrollvekjandi stemningu, með gínum, ruslapokum og kertum svo eitthvað sé nefnt. Fólk var almennt mjög ánægt með skreytingarnar og lét vel af kvöldinu.
Hryllingskvöldið var fyrsta kvöldið þar sem opið var til kl. 01:00 í 88 Húsinu og það heppnaðist með ágætum og vel má vera að um helgar verði oftar opið jafn lengi í framtíðinni ef vel gengur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn