Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Vel heppnað Þorrablót UMFG
Þessar skemmtu sér vel á þorrablótinu í Grindavík.
Miðvikudagur 5. febrúar 2014 kl. 09:10

Vel heppnað Þorrablót UMFG

- Fjöldi skemmtiatriða og góð stemning.

Þorrablót knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildar UMFG var haldið á laugardaginn. Uppselt var og almenn ánægja með að þorrablótið er komið til að vera. Meðal skemmtiatriða var bæjarbragur Sigurðar Ingvasonar, Helena Eyjólfsdóttir tók gamla slagara, gömul karokekeppni var endurvakin, karlakór Grindavíkur tók lagið og Freyr Eyjólfsson sá um veislustjórn. Hljómsveitin Upplyfting hélt svo stuðinu uppi á ballinu.

Guðfinna Magnúsdóttir tók myndir á þorrablótinu sem eru hér fyrir neðan en hún tók einnig á móti gestum í svarthvíta myndatöku. Afraksturinn má sjá á síðu hennar hér.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024