Sunnudagur 22. júní 2003 kl. 00:59
Vel heppnað kvennahlaup í Sandgerði
Kvennhlaupið fór fram í Sandgerði eins og um allt land í gær. Konurnar hituðu upp undir stjórn Margrétar Richardsdóttur og hlupu síðan 3,5 km. leið um götur bæjarins. Við komuna í mark fengu allar verðlaunapening og hressingu. Að lokum var öllum þátttakendum kvennahlapsins í Sandgerði boðið í sund.