Bygg
Bygg

Mannlíf

  • „Vel gert“
    Hópur lögreglumanna af Suðurnesjum.
  • „Vel gert“
    Þessi mynd af hraðamæli fylgdi með.
Miðvikudagur 29. október 2014 kl. 08:50

„Vel gert“

Lögreglan á Suðurnesjum hrósar ökumönnum.

Lögreglan á Suðurnesjum sá ástæðu til þess að koma hrósi til ökumanna á framfæri á facebook síðu sinni í gær. Alla morgna er lögreglan á Suðurnesjum við eftirlit við skóla í umdæminu. Í gærmorgun var bifreið frá þeim staðsett meðal annars við leikskólann Vesturberg við Vesturbraut. „95 bifreiðum var ekið þarna um á tímabilinu 07:45-08:05 og var meðalhraði bifreiðanna 44 km/klst en hámarkshraði þarna er 50 km/klst. Sá sem hraðast ók reyndist aka á 56 km/klst en sá sem hægast fór reyndist aka um á 25 km/klst,“ segir á síðunni. Jafnframt var fylgst með notkun öryggisbelta og segir lögreglan að allir sem óku þarna um hafi verið með belti spennt. „Vel gert,“ segir lögreglan að endingu. Gott hjá lögreglunni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn