Veitingastaður Bláa Lónsins: Lava kynnir spennandi matseðil í tilefni Food and fun
 Spennandi matseðill verður í boði í Lava, veitingasal Bláa Lónsins í tilefni Food and fun hátíðarinnar. Matseðillinn sem verður í boði dagana 23. og 24. febrúar byggir m.a. ný norrænni nálgun við matargerðarlist.  Sérstaða matseðilsins felst í því að hann byggir að mestu leyti á hráefni sem upprunið er á Norðurlöndunum.
Spennandi matseðill verður í boði í Lava, veitingasal Bláa Lónsins í tilefni Food and fun hátíðarinnar. Matseðillinn sem verður í boði dagana 23. og 24. febrúar byggir m.a. ný norrænni nálgun við matargerðarlist.  Sérstaða matseðilsins felst í því að hann byggir að mestu leyti á hráefni sem upprunið er á Norðurlöndunum.Aðalsteinn Friðriksson, yfirmatreiðslumeistari Bláa Lónsins, segir matseðilinn byggja á nærtæku hráefni og frumlegri nálgun sem skilar sér í spennandi réttum. “Ný norræn matargerðarlist á miklum vinsældum að fagna enda byggir hún á fersku og góðu hráefni sem er upprunið á norrænum slóðum. Við leggjum mikinn metnað í að bjóða gestum okkar allt það nýjasta í matargerðarlist og það er ánægjulegt hér á veitingstaðnum Lava að vera með skemmtilegan matseðil í tilefni Food and fun,” segir Aðalsteinn.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				