Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Veitingastaðnum breytt í heimsendingarverslun með matvöru
Högni Júlíusson hefur búið í San Francisco í Kaliforníu í um tvo áratugi.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 18. apríl 2020 kl. 13:21

Veitingastaðnum breytt í heimsendingarverslun með matvöru

Högni Júlíusson hefur búið í San Francisco í Kaliforníu í um tvo áratugi þar sem hann starfar sem þjónn. Þegar hann hafði lært þjóninn langaði hann að vinna í Bandaríkjunum um tíma. Hann fékk starf á skemmtiferðaskipi og þar kynntist hann eiginkonunni, Amy. Hún er frá Minneapolis og þau eiga það sameiginlegt að hafa lítinn áhuga á vetrinum og því ákváðu þau að setjast að í San Francisco.

HÉR MÁ LESA VIÐTALIÐ VIÐ HÖGNA Í VÍKURFRÉTTUM VIKUNNAR. - SMELLIÐ HÉR!

„Það hentar okkur vel að vera hér. Það er ekki of heitt og heldur ekki of kalt,“ segir Högni í samtali við Víkurfréttir. Blaðamaður sló á þráðinn til Högna þegar hann var í daglegri heilsubótargöngu en það er leyfilegt að fara út og hreyfa sig einu sinni á dag að uppfylltum skilyrðum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

– Hvernig ert þú að upplifa ástandið í tengslum við COVID-19 í San Francisco?

„San Francisco er ein af fyrstu borgunum hér í Bandaríkjunum sem skipuðu fólki að vera heima vegna ástandsins. Það eru frekar fáir smitaðir hér miðað við fjöldann sem býr hérna. Ástandið hér er allt annað en í New York. Þar var byrjað miklu seinna að skipa fólki að vera heima. Það hefur hjálpar helling hér. Við erum að koma mun betur út úr ástandinu.

Hér eru allir veitingastaðir lokaðir, nema þeir sem eru með heimsendingarþjónustu. Á veitingastaðnum þar sem ég starfa var ákveðið að vera með heimsendingarþjónustu en ekki á tilbúnum mat. Við sendum hráefni til matargerðar heim til fólks. Við breyttum veitingastaðnum í heimsendingarmatvörubúð og erum m.a. að senda heim mjólkurvörur, hveiti og ferskt grænmeti svo dæmi séu tekin og það er að virka mjög vel.“

– Er faraldurinn að hafa mikil áhrif á þitt daglega líf?

„Já, helling. Krakkarnir eru ekki í skólanum og eru bara að læra heima. Þá er konan mín að vinna heimanfrá, þannig að þetta er mikil breyting frá því sem var.“

– Og vinnudagurinn er mikið breyttur hjá þér?

„Já, ég hef alltaf unnið á kvöldin, frá fjögur síðdegis og fram yfir miðnætti. Núna byrja ég vinnudaginn tólf á hádegi og er að vinna til klukkan sex síðdegis og er bara í heimsendingum. Ég er kominn heim um sjöleitið og það er mjög skrítið að vera heima á kvöldin sjö daga vikunnar. Ég er ekki vanur því að vera heima á kvöldin nema kannski tvo daga í viku, svo þetta er allt öðruvísi líf.“

Veitti faraldrinum athygli þegar Ítalía og Alparnir sýktust

– Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega?

„Það var í raun bara um leið og við þurftum að loka veitingastaðnum fyrir fimm vikum síðan. Þetta er mikið í fréttum og maður sér vel hvað er að gerast í heiminum.“

Högni segist fyrst hafa farið að veita faraldrinum athygli þegar Ítalía og Alparnir voru orðnir helsýktir. „Þá held ég að fólk hér í San Francisco hafi áttað sig á því hvað þetta gæti orðið hræðilegt.“ Hann segir að yfirvöld í San Francisco hafi brugðist við sjúkdómnum mun fyrr en annars staðar í Bandaríkjunum og segir að það hafi verið tveimur til þremur vikum fyrr en t.d. í New York sem hefur verið mikið í fréttum. „Það hefur verið tekið vel á málum hér í San Francisco og restinni af Kaliforníu, alveg til fyrirmyndar.“ – Ertu eitthvað að fylgjast með fréttum að heiman um þessi mál?

„Já, ég reyni að fylgjast með fréttum á Ríkisútvarpinu og Stöð 2. Ég skoða fréttir að heiman svona annan hvern dag og svo er maður líka í sambandi við fjölskylduna heima.“

– Er nokkuð annað í fréttum en þetta í Bandaríkjunum?

„Nei, það er voðalega lítið annað og ekki getur maður horft á íþróttir.“

– Hvað gerir fjölskyldan þá til afþreyingar í þessu ástandi?

„Það er bara bíókvöld í sjónvarpinu og svo eru spilakvöld með krökkunum.“ Högni og Amy eiga tvær dætur, tólf og fimmtán ára, og þær skilja vel hvað er að gerast. „Þetta væri erfiðara ef þær væru yngri,“ segir Högni. – Þú hefur ekkert velt fyrir þér að koma heim til Íslands?

„Nei, það er ekkert fyrir okkur á Íslandi. Ég er búinn að búa hérna í San Francisco í tuttugu ár og ég á ekkert á Íslandi nema fjölskyldu og ættingja. Lífið er hér fyrir mig.“ Þá segir Högni að hann reyni að halda góðu sambandi við foreldra og systkini heima á Íslandi en það sé ekkert meira nú en áður.

Verslað inn fyrir hálfan mánuð og farið snemma í búðina

Vanalega hefur Högni farið í matvörubúð og gert innkaup einu sinni í viku en í því ástandi sem nú er þá er farið á tveggja vikna fresti.

„Núna kaupum við aðeins meira inn þegar við erum að versla og kaupi inn það sem er búið á heimilinu. Þá höfum við breytt tímanum sem við förum út að versla. Nú er farið fyrr að deginum ef það vantar klósettpappír eða snýtibréf. Ef maður fer ekki snemma á morgnanna, þá er allt búið. Maður lætur sig hafa það,“ segir Högni og brosir til blaðamanns í myndsímtali.

– Hefur þú eitthvað velt því fyrir þér hvað þetta eigi eftir að standa lengi yfir?

„Já, maður hugsar um það á hverjum degi. Hér er útgöngubann til 7. maí en ég held að þeir eigi eftir að lengja það um einhverjar tvær vikur.“

Þegar blaðamaður Víkurfrétta hringdi í Högna var hann í heilsubótargöngu með fjölskyldunni. Það mátti heyra fuglasöng og blaðamaður spurði hvort það væri alltaf sumar í San Francisco.

„Hér er íslenskt sumar allt árið. Núna er 15–18 stiga hiti og þannig er það flesta daga. Það fer upp í 24 gráður um miðja vikuna en annars eru þessar 15–18 gráður í borginni.

– Er leyfilegt að fara út að ganga?

„Það er leyfilegt einu sinni á dag en það verður að halda tveggja metra fjarlægðinni og setja upp andlitsgrímur þegar fólk mætist úti á götu.“

– Eru margir á ferli?

„Ég læt það nú vera. Það eru einhverjar fjölskyldur úti að ganga. Það er sunnudagur og páskar. Ef þetta ástand væri ekki í heiminum þá væru göturnar fullar af fólki. Eins og þú sérð þá eru örfáir á labbi og frekar lítið að gera,“ segir Högni að lokum.

MARGT FLEIRA Í FJÖLBREYTTUM 76 BLS. VÍKURFRÉTTUM VIKUNNAR