Bygg
Bygg

Mannlíf

Veit ekki enn hvað hann ætlar  að verða þegar hann verður stór
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 8. júní 2020 kl. 13:21

Veit ekki enn hvað hann ætlar að verða þegar hann verður stór

Lögmaðurinn Jóhannes Albert Kristbjörnsson gerði garðinn frægan með körfuboltaliði Njarðvíkur fyrir „nokkrum“ árum síðan – hann keppist nú við að ala upp foreldra sína og systkini þó uppskeran sé rýr. Hann vonast til að verða börnum sínum góð fyrirmynd.

– Nafn:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Jóhannes Albert Kristbjörnsson.

– Árgangur:

1965.

– Fjölskylduhagir:

Í hjúskap með Guðrúnu Sigríði Jóhannesdóttur og á með henni börnin Ásdís Hjálmrós (2004) og Jóa Krissa (2007). Á börnin Auði Indíönu (1988) og Axel Sölva (1990) með Matthildi Gunnarsdóttur og ól Elísabetu Lovísu Björnsdóttur (1981) upp frá fjögurra ára aldri til átján ára aldurs. Keppist nú við að ala upp foreldra mína og systkin, við lítinn árangur!

– Búseta:

Melavegur 3 í Njarðvík.

– Hverra manna ertu og hvar upp alin:

Faðir minn er Kristbjörn Albertsson (1944) sem er af Króksætt í Árnessýslu. Hann kenndi við góðan orðstír í Njarðvíkurskóla í áratugi og var einn af frumkvöðlum dómgæslu í körfuknattleik á Íslandi, m.a. fyrsti íslenski dómarinn með alþjóðleg réttindi. Mamma er Marta Ólína Jensdóttir (1948) sem líka var kennari, lengst um í Kópavogi. Hún á ættir að rekja til Stykkishólms og Austfjarða auk þess sem við eigum fjölda ættingja í Grundavík. Foreldrar mínir eru og voru fádæma skipulagðir og agaðir. Dæmi um það er að ég er fæddur á sjötíu ára afmæli föðurafa míns og Jens bróðir minn er fæddur sjö árum síðar, á sextíu ára afmæli móðurafans.

Ég ólst upp að mestu í Njarðvíkunum en á afar góðar minningar frá ömmu Ásdísi og afa Jens í Hvammi í Höfnum. Ég á eiginlega flestar bestu minningarnar af frelsinu í fjörunni í Höfnunum. Ég hef búið í Pennsylvania í USA, Breiðholtinu í Reykjavík og í Grindavík en það voru í sjálfu sér skammvinnar dvalir og ég lít á mig sem Suðurnesjamann í húð og hár.

– Starf/nám:

Starfaði við alls konar fiskvinnslu-, bygginga- og verslunarstörf sem pjakkur. Hóf störf í lögreglunni 1986, þá tvítugur. Útskrifaðist frá Lögregluskóla ríkisins 1993 og starfaði samtals í fimmtán ár í lögreglunni en hætti 2007. Hætti reglulega í lögreglunni en byrjaði alltaf aftur. Starfaði sem blaðamaður á Víkurfréttum á einu „hættutímabilinu“ úr lögreglunni en félagarnir þar höfðu á orði að í hvert skipti sem ég hætti þá hækkuðu launin hjá þeim. Starfaði einnig sem forritari hjá Softa í öðru hléi. Hætti endanlega þegar ég fór í laganám í Háskólanum í Reykjavík.

Útskrifaðist þar 2012 og þótti svo eftirsóknarverður til starfa að ég stofnaði Lögmannsstofu Reykjaness um leið og lögmannsréttindin fengust 2013. Hef rekið hana síðan og er með skrifstofu á Hafnargötu 35 í Keflavík. Reyni að hafa gaman að hverju því verkefni sem inn á borð til mín ratar þó stundum séu málin snúin og leiðinleg.

– Hvað er í deiglunni?

Ásdís Hjálmrós okkar er að útskrifast frá Njarðvíkurskóla á næstu dögum og er jafnframt komin í ökunám hjá Krissa Geirs. COVID-19 breytti aldeilis öllum plönum flestra en við Íslendingar vorum afburða heppnir með krísustjórnendur að þessu sinni. Þessi líka óagaða og uppreisnargjarna þjóð hvers frambærilegast einstaklingur er taugalæknir með stáltaugar sem ég hef ekki enn fengið tækifæri til að bursta í körfubolta. Ég er svo mikill „team-Kári“-maður að ég myndi eflaust leyfa honum að vinna, bara til að svekkja Grím Atlason og Svavar Vignisson, sem báðir trúa því enn að þeir hafi bara verið óheppnir.

Annars fylgjumst við fjölskyldan (ég) vel með fréttum af vondri þróun í Bandaríkjunum sem er eins og verulega vont raunveruleikasjónvarp.

– Hvernig nemandi varstu í grunnskóla?

Báðir foreldrarnir voru kennarar en því fylgja bæði kostir og gallar. Ég nýtti eflaust ekki mína hæfileika sem skyldi en ég kom alltaf (að eigin mati) til varnar þeim sem minna máttu sín. Ég á ekki margar minningar úr grunnskóla. Sjálfsvitundin var ekki á háu stigi.

– Hvernig voru framhaldsskólaárin?

Stúdentsnámið fór fram að hluta í Versló, að hluta í Ameríku og að hluta í kvöldnámi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þegar ég var orðinn fullorðinn. Skemmtilegustu námsárin voru árin í laganáminu í HR. Kynntist þar mörgum frábærum einstaklingum. Sumir kölluðu fram bros daglega á meðan ég dáðist að öðrum úr fjarlægð.

– Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Ég hafði aldrei hugmynd og hef ekki enn. Vonast að mestu að ég sé börnum mínum góð fyrirmynd, standi fyrir sanngirni og gegn klíkuskap og ofríki.

– Hver var fyrsti bíllinn þinn?

Þú meinar eftir að ég hafði tjónað bifreiðar foreldranna? Ég held það hafi verið brúnleit Mazda.

– Hvernig bíl ertu á í dag?

Í dag ek ég um á 2019 árgerð, rauðum Mitsubishi Outlander. Samkvæmt frúnni er ég rafmagnsofstækismaður sem kveikir aldrei á miðstöðinni, til að spara rafhleðsluna.

– Hver er draumabíllinn?

Svartur Toyota Yaris með skráningarnúmerinu EZMO1, þ.e.a.s frúarbíllinn. Ég vil að hún taki Fagra-Rauð en hana vantar hleðslustöð við hennar frábæra vinnustað, aðalstyrktaraðila Vals, Origo, til að það sé hagkvæmt.

– Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki?

Nú langar mig að svara á tiltekinn hátt sem oft var sagt um blökkumenn í sturtuumræðum í körfunni í þá góðu gömlu daga en ég átti víst nóg af leikföngum. Ætli það hafi ekki verið reiðhjólin sem ég átti á hverjum tíma.

– Besti ilmur sem þú finnur:

Lyktin af fallegri konu, jafnast ekkert á við hana.

– Hvernig slakarðu á?

Þetta er raunverulegt vandamál í dag, áreitið er höfuðverkur alls staðar. Körfuboltinn var alltaf minn sálfræðingur, geðlæknir og Jónína Ben. Hef aldrei haft gaman af því að reyta arfa eða telja skrúfur. Líkamleg áreynsla er besta slökunin sem ég á í dag.

– Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst u.þ.b. sautján ára?

Bonnie Tyler og Sinead O’Connor.

– Uppáhaldstónlistartímabil?

Hef alltaf fagnað þögninni meira en hávaðanum í tónlist. Held að mitt uppáhaldstónlistartímabil sé að renna í garð núna

– Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana?

Billie Eilish, Leonard Cohen á endurkomu og sama með Kenny Rogers.

– Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili?

Man það hreinlega ekki. Eflaust Bítlana og ABBA í bland.

– Leikurðu á hljóðfæri?

Hahahaha!

– Horfirðu mikið á sjónvarp og hvernig?

Línuleg dagskrá er liðin tíð á mínu heimili. Ég gríp eina og eina seríu af Netflix. Þar er finnski þátturinn Bordertown í uppáhaldi núna en ég hika ekki við að setjast niður með syninum og horfa á Rick & Morty. 

– Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu?

Það er ekkert í sjónvarpinu sem ég má ekki missa af.

– Besta kvikmyndin:

The Good, the Bad and the Ugly en The Shining er ekki langt undan.

– Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða rithöfundur?

Stephen King.

– Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili?

Vakna á morgnana um helgar.

– Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?

Uppvask.

– Hvernig er eggið best?

Linsoðið.

– Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu?

Hve ég er fljótur að kenna sjálfum mér um þegar eitthvað fer úrskeiðis. Já, og hve lengi ég er að gefast upp á vonlausum verkefnum.

– Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?

Þegar fólk heldur að það sé betra en annað fólk vegna uppruna síns, menntunar, fjölskyldu eða ríkidæmis.

– Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun:

Það eru ekki alltaf jólin.

– Hver er elsta minningin sem þú átt?

Að baka kleinur með ömmu Dísu, fyrir alla þá einstöku einstaklinga sem amma tók með glöðu geði á móti daglega í Hvammi.

– Orð eða frasi sem þú notar of mikið:

Í alvöru.

– Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu?

Að minnsta kosti ekki til ársins 2020. Að öllu gamni slepptu þá held ég að ég myndi vilja sjá með eigin augum breytinguna á heiminum frá 1900 til 1930.

– Hver væri titillinn á ævisögu þinni?

Ekki eins og flestir.

– Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera?

Hafþór Júlíus Björnsson myndi aldeilis éta á sig gat þann daginn og taka eins og þúsund þriggja stiga skot.

– Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð?

Ég á mér engan draumakvöldverð með frægu fólki, lifandi eða látnu. Draumakvöldverður er kvöldverður sem Gunna Sigga þarf ekki að elda og draumapersónurnar væru þær sem mér þykir allra vænst um. Svona af því að það eru aðeins þrír aðilar í boði þá nefni ég engin nöfn.

– Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til?

Ég hef vonda tilfinningu fyrir stefnu heimsmála. Ég er þó samt fullur jákvæðni yfir því hve Ísland hefur staðið sig vel í COVID-19-þrengingunum og hef fulla trú á endurreisn atvinnulífsins.

– Er bjartsýni fyrir sumrinu?

Já, ég held þetta verði gott sumar, a.m.k. í samanburði við vetrarlok og vordaga.

– Hvað á að gera í sumar?

Dytta að heimilinu og ferðast innanlands.

– Hvert ferðu í sumarfrí?

Vestfirðir eru líklegasti áfangastaður sumarsins.

– Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim?

Er eitthvað rangt svar? Ég myndi fara á Reykjanesið og þar í góða gönguferð. Enda á Þorbirni og borða þar nesti og taka myndir í góða veðrinu sem hér alltaf ríkir.

– Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu ...

... til Færeyja. Hef aldrei komið þangað þrátt fyrir að hafa alltaf langað.