Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Vegleg verðlaun fyrir Ljósalagið 2006
Fimmtudagur 15. júní 2006 kl. 11:50

Vegleg verðlaun fyrir Ljósalagið 2006

Leitað er að lagi og texta til að taka þátt í sönglagakeppninni Ljósalagið, sem haldin er í Reykjanesbæ ár hvert. Sigurlag keppninnar verður notað sem einkennislag fyrir Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar,sem haldin er fyrstu helgina í september. Leitað er að góðu dægurlagi sem þarf ekki endilega  að hafa einhverja skírskotun í Ljósanótt. Yfirumsjón með framkvæmd verður í höndum Geimsteins og stefnt er að útgáfu geisladisks með sigurlögunum.

Vegleg verðlaun í boði

1. verðlaun kr. 400.000
2. verðlaun kr. 150.000
3. verðlaun kr. 100.000

Verkinu skal skilað á skrifstofu menningarfulltrúa, Tjarnargötu 12 í Reykjanesbæ fyrir 1. júlí 2006, merkt Ljósalag. Laginu skal skilað undir dulnefni á geisladiski eða hljómsnældu og jafnframt íslenskum texta á blaði.  Rétt nafn skal fylgja með í lokuðu umslagi.  Nánari upplýsingar: [email protected].
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024