Vegleg uppskera hjá Njarðvík
Uppskeruhátíð úrvalsdeildarliðs Njarðvíkur í körfuknattleik fór fram í Stapa í kvöld. Þar kom Njarðvíkurliðið saman ásamt helstu stuðningsaðilum sínum þar sem borðaður var góður matur og ýmislegt gert til skemmtunar.Um miðnætti var síðan rólegheitunum breytt í dansleik sem átti að standa fram á morgun. Ljósmyndari Víkurfrétta var á staðnum undir borðhaldi og tók þá meðfylgjandi myndir.