Mannlíf

Vefurinn Sumar í Reykjanesbæ hefur verið opnaður
Miðvikudagur 17. maí 2017 kl. 13:32

Vefurinn Sumar í Reykjanesbæ hefur verið opnaður

Í dag var vefurinn Sumar í Reykjanesbæ formlega opnaður. Þar er listi yfir þær tómstundir og afþreyingu sem einstaklingar, íþrótta- og tómstundafélög bjóða upp á fyrir börn og unglinga í Reykjanesbæ í sumar, en einnig upplýsingar um ýmislegt sem bærinn hefur upp á að bjóða. Bæði er hægt að skoða listann í heild eða velja ákveðinn aldurshóp og þrengja þannig leitina.

Reykjanesbær hafði til langs tíma gefið út bæklinginn Sumar í Reykjanesbæ í þessum sama tilgangi. Hagræðið í því að skipta yfir í vef er meðal annars fólgið í því að vefurinn er lifandi og því auðveldlega hægt að bæta við framboðið í allt sumar. Vefurinn gæti því átt eftir að taka breytingum hvað það varðar og því um að gera að fylgjast vel með vefnum í sumar.

Public deli
Public deli