Bygg
Bygg

Mannlíf

VEFTV: Léttsveitin fagnaði tveimur tugum
Mánudagur 19. maí 2008 kl. 10:15

VEFTV: Léttsveitin fagnaði tveimur tugum

Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fagnaði 20 ára afmæli sínum með tónleikum í Frumleikhúsinu sl. föstudagskvöld. Það var þétt setinn bekkurinn í leikhúsinu þegar Léttsveitin, í þremur útgáfum, lék þekkt lög fyrir gesti.


Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar er búin að vera eitt af stærri flaggskipum menningarlífs Reykjanesbæjar allan þennan tíma og borið hróður sveitarfélagsins víða, bæði hér innanlands og erlendis. Sveitin var stofnuð af Tónlistarskólanum í Keflavík og færðist síðan yfir í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar við stofnun þess skóla árið 1999.


Allan þennan tíma hefur Karen J. Sturlaugsson byggt upp og stjórnað sveitinni fyrir utan eitt ár ( sl. skólaár) sem Eyþór Ingi Kolbeins hélt um stjórnvölinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Nokkur lög frá tónleikunum má nálgast í Vefsjónvarpi Víkurfrétta með því að smella hér!

http://vf.is/veftv/543/default.aspx