Veftímarit VF: Nýtt gamalt glæsihús á Íshússtíg
— Sjáið allar myndirnar í nýja veftímaritinu okkar
Þau Bjarni Stefánsson og Særún Guðjónsdóttir búa í glæsilegu húsi við Íshússtíg í gamla bænum í Keflavík. Húsið er gamalt nýtt en það var byggt á árunum 2003 til 2006. Á meðan húsið var í byggingu þá bjuggu skötuhjúin í bílskúr á lóðinni. Nú hafa synirnir Patrekur og Sindri bæst í hópinn og unir fjölskyldan sér vel í einkar notalegu húsi þar sem hvert smáatriði er úthugsað.
Ítarleg umfjöllun um þetta glæsilega hús er í nýju veftímariti Víkurfrétta. Þar má sjá fjölmargar stórar myndir úr húsinu. Umfjöllunina má lesa hér.