Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Vefsjónvarp: Bæjarstjórinn leikur sjálfan sig í revíu Leikfélags Keflavíkur
Föstudagur 18. apríl 2008 kl. 13:11

Vefsjónvarp: Bæjarstjórinn leikur sjálfan sig í revíu Leikfélags Keflavíkur

Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, Árni Sigfússon, mun hlaupa í skarðið fyrir einn leikara í revíu Leikfélags Keflavíkur, Bærinn breiðir úr sér, sem sýnd hefur verið við fádæma góðar undirtektir að undanförnu í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ.

Sá sem leikur hlutverk bæjarstjórans í sýningunni þurfti að bregða sér út fyrir landsteinana og því þótti mönnum í leikfélaginu það liggja beinast við að leita til bæjarstjórans um að leika sjálfan sig.

Það stóð ekki á svari hjá bæjarstjóra sem lýsti sig strax reiðubúinn. Þess má geta að Árni hefur áður tekið að sér hlutverk í menningarverkefni á Suðurnesjum en þá lék hann lögreglustjórann í bíómynd Kristlaugar Sigurðardóttur Didda og dauði kötturinn en Kristlaug er m.a. þekkt fyrir Ávaxtakörfuna og fleiri góð verkefni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Að sögn Guðnýjar Kristjánsdóttur hjá Leikfélagi Keflavíkur hafa æfingar gengið vel. „Hann er búinn að vera ótrúlega jákvæður og lipur við okkur bæjarstjórinn og okkur finnst þetta mjög skemmtilegt ævintýri“.

Bæjarstjóri mun bæði leika, syngja og jafnvel taka nokkur danspor á sýningum í kvöld, föstudaginn 18. apríl og á morgun, laugardaginn 19. apríl n.k. og hefjast sýningar kl. 20:00.