VEFNAÐARVÖRUVERSLUN Í REYKJANESBÆ TIL SÖLU
Vefnaðarvöruverslun til tólf ára í Reykjanesbæ er til sölu. Af hverju í ósköpunum er þessi fallega verslun til sölu? Kaupmaðurinn á horninu er á besta aldri og af hverju ætti hún að vilja selja verslunina sína? Viti menn, hún Gróa á Leiti veit svarið við því. Viljir þú vita hvernig á þessu stendur þá spyrð þú auðvitað bara hana Gróu. En hún Gróa er nú bara svo svakalega víðförul og þess vegna þarft þú ekki einu sinni að leita hana uppi, hún leitar að þér.Gróa á Leiti þekkir fullt af fólki. Já, svei mér þá ég held að hún þekki bara næstum því alla. Alla vega held ég að hún þekki næstum því alla í Reykjanesbæ.Ekki fyrir löngu síðan sá Gróa auglýsingu í einu af bæjarblöðunum. Þar stóð að vefnaðarvöruverslun í Reykjanesbæ væri til sölu og mynd birt af versluninni. Gróa var fljót á sér, eins og svo oft áður, og hugsaði með sér: Af hverju í ósköpunum er þessi fallega verslun til sölu? Kaupmaðurinn á horninu er á besta aldri og af hverju ætti hún að vilja selja verslunina sína?Gróa hélt áfram að hugsa: Bíddu, af hverju er ég, Gróa sjálf, að velta þessu fyrir mér? Þessa hluti veit ég nú bara eins og með svo margt annað í gegn um tíðina. Ég er nefnilega þannig gerð að ég bara ræð í eyðurnar og bý til alveg frábærar sögur sem ég fæ alla til að trúa. Ég veit að ég fæ aldrei alla til að trúa mér en þeir sem eru svo einfaldir að þurfa engar sannanir fyrir því hvort sögurnar mínar séu réttar eða rangar, þeir trúa mér alltaf og það er nú bara svo gaman að ljúga að þeim að ég ætla að halda því áfram eins lengi og ég lifað fæ.Gróu langar til að segja þér þessa sögu og í guðanna bænum reyndu að segja hana öllum sem þú þekkir, það finnst Gróu svo skemmtilegt. Gróu langar líka til að biðja þig um að gera sér pínu greiða í leiðinni. Sértu þannig gerð/ur að þér finnist Gróa skemmtileg kerling þá langar hana voða mikið til að biðja þig um að krydda söguna svolítið meira. Þá verður sagan hennar, nei, ég meina sagan ykkar Gróu, mikið skemmtilegri.Gróa er mætt á staðinn og langar til að segja þér söguna af kaupmanninum á horninu og hlustaðu nú vel. Þetta er svakalega spennandi saga:Heldurðu ekki að kaupmaðurinn á horninu sé að selja verslunina sína vegna þess að maðurinn hennar er að skilja við hana. Bíddu, en þau eru búin að vera gift í 26 ár. Af hverju ætli þau séu að skilja? Þau sem eru svo yndisleg saman, eiga 4 börn, 5 yndisleg barnabörn og virðast öll lifa hamingjusömu lífi og ganga svo vel. Ætli maðurinn hennar hafi verið að halda framhjá henni, oh... týpískt. Alltaf eru allir skilnaðir eins. Ég var nefnilega stödd á veitingastað mannsins hennar um daginn og þá kom inn ung stúlka, komin um það bil 8 mánuði á leið, og hann tók utan um hana og kyssti. Kannski var þetta tengdadóttir hans, hún er nefnilega ófrísk. Nei, örugglega ekki. Þetta hlýtur að hafa verið framhjáhaldið hans. Það getur bara ekkert annað verið. Þessa sögu verð ég að segja vinkonum mínum. Ekkert smá góð saga. Finnst þér það ekki?Nei, reyndar finnst mér þetta ekki góð saga. Ég er nefnilega dóttir kaupmannsins og veitingamannsins og elska foreldra mína alveg út af lífinu. Ég veit nefnilega af eigin reynslu að Gróa á Leiti er vond kerling og henni er alveg sama um þig. Henni langar bara til þess að særa sem flesta og helst þá þannig sári að það nái aldrei að gróa.Gerðu mér greiða....nei, ég meina gerðu þér greiða. Láttu Gróu eiga sig. Hún er leiðindakerling.Ég óska ykkur öllumfarsæls nýs árs,Ragnheiður Björnsdóttir