Mannlíf

Var unglingur sem fékk níu mánuði til þess að þroskast
Það er alltaf fjör á þessu heimili.
Föstudagur 12. september 2014 kl. 18:00

Var unglingur sem fékk níu mánuði til þess að þroskast

- Steinunn Ósk Valsdóttir varð ung barnshafandi af tvíburum

Steinunn Ósk Valsdóttir er ung tvíburamóðir. Hún eignaðist tvíburastráka þegar hún var rétt að skríða í tvítugt. Hún segist fyrir fæðingu strákanna alls ekki hafa verið ábyrgðarfull manneskja. Sér hafi gengið illa í skóla, hafði ekki mikinn metnað eða sérstaka framtíðarsýn. Hún og barnsfaðir hennar Garðar Birgisson voru ekki búin að vera lengi saman þegar Steinunn varð ólétt. Eyþór Sæmundsson blaðamaður ræddi við Steinunni um áskorunina að vera ungir foreldrar og ýmis samfélagsleg mál sem snúa að barnauppeldi.

Umræðan um fóstureyðingu kom upp hjá þeim Steinunni og Garðari en það kom þó aldrei til greina. „Við hefðum getað komið í veg fyrir þetta og því fannst okkur að það væri hálf eigingjarnt af okkur að standa ekki og falla með þessu,“ segir Steinunn. Þau Steinunn og Garðar voru tiltölulega nýbyrjuð að hittast þegar í ljós kom að hún var ólétt. Það kom flatt upp á þau, sem og tíðindin að um tvíbura væri að ræða. „Það var mjög skrýtið og mjög mikið sjokk að uppgötva að ég gengi með tvíbura. Ég hafði ekkert umgengist nein börn og þurfti því að læra allt frá grunni,“ segir Steinunn. Hún viðurkennir að hafa verið skjálfandi hrædd við að segja pabba sínum frá því að hún væri ólétt. Foreldrar þeirra beggja brugðust hins vegar mjög vel við og voru rosalega jákvæð og hamingjusöm með þetta. „Foreldrar okkar eru búnir að vera yndislegir og við fáum mikla hjálp frá þeim,“ segir Steinunn.

Public deli
Public deli

Verður skrýtið að eignast eitt barn

Það virðist ekki vera eins algengt að fólk eignist börn jafn snemma á lífsleiðinni og tíðkaðist áður fyrr. Það kemur sjálfsagt til með aukinni kröfu á háskólamenntun og meiri fræðslu um kynlíf. Aukin þátttaka kvenna á vinnumarkaði hefur þar einnig áhrif. Þannig að vera tvítug tveggja barna móðir er ekki svo algengt nú til dags. „Ég þekki ekkert annað núna en að eignast og sjá um tvö börn. Ég held að það verði skrýtnara að eignast bara eitt barn,“ segir Steinunn létt í bragði. „Það er mjög erfitt að sjá um tvíbura upp á eigin spýtur þegar annar aðilinn er að vinna. Þegar þeir voru mjög litlir þurfti ég mikla aðstoð. Við bjuggum á þriðju hæð í blokk þar sem erfitt var fyrir mig að fara með strákana út, ég fór því lítið út úr húsi. Þegar ég fór svo með þá út í burðarrúmi þá var það eins og hin svæsnasta líkamsrækt,“ segir Steinunn.

Ekkert gaman að vera algjör hlussa með tíu sinnum stærri kúlu en hinar

Þetta gekk brösulega í byrjun hjá þeim skötuhjúum. Bæði var meðgangan Steinunni erfið og eins voru drengirnir töluvert veikir og óværir fyrstu mánuðina eftir að þeir komu í heiminn. „Þeir sváfu ekkert og það var mikið grátið.“ Þegar fjölskyldan bjó á Ásbrú kom upp myglusveppur í íbúðinni. „Þeir voru eyrnabörn fyrir en fengu astma í kjölfarið af myglusveppnum,“ rifjar Steinunn upp. Hún þurfti að hætta vinnu snemma á meðgöngunni og var mikið heima við. „Margir tala um að það sé svo æðislegt á meðan meðgöngu stendur en ef ég á að segja eins og er þá var þetta hundleiðinlegt,“ segir Steinunn og hlær. „Það er ekkert gaman að vera algjör hlussa með tíu sinnum stærri kúlu en hinar. Það er óþægilegt að hreyfa sig og sofa. Það var mikill léttir eftir að þeir fæddust að fá loks að sofa almennilega.“ Strákarnir sem heita Gunnar Gauti og Steinar Aron eru tveggja og hálfs árs og segir Steinunn að lífið sé talsvert auðveldara nú til dags. „Þeir eru hættir að vera kvefaðir núna eftir að hafa verið á astmalyfjum. Það er nýtt fyrir okkur, það er rosalega gaman núna hjá okkur. Mikið fjör og mikið talað,“ segir hún og brosir.

„Ég ætla að mennta mig, þar sem mig langar til þess að ganga vel í framtíðinni“

Steinunn segir þetta hafa verið erfitt tímabil en hún var einnig í námi samhliða barnauppeldinu. Strákarnir voru meira og minna lasnir á meðan Steinunn stundaði nám en hún kláraði stúdentspróf í fjarnámi í háskólabrú Keilis. „Miðað við aðstæður gekk mér vel að klára stúdentsprófið. Ég var oft ein taugahrúga með myglusvepp og tvö grátandi börn í íbúðinni.“ Leiðin liggur svo í háskólann í haust hjá Steinunni. „Ég vil klára að mennta mig sem fyrst,“ segir Steinunn sem ætlar sér að leggja stund á félagsfræði. Hún hefur verið meira og minna heima síðan synir hennar fæddust en hún hlakkar til að byrja í staðarnámi við Háskóla Íslands. Guðný móðir Steinunnar fór einnig í háskólabrú Keilis þegar hún var rúmlega fertug og kláraði svo félagsfræði í háskóla. Steinunn segir að Guðný móðir sín hafi veitt sér mikinn innblástur og sé alveg hreint æðisleg fyrirmynd. Sjálf vill Steinunn vera fyrirmynd fyrir syni sína og því kom ekkert annað til greina en að halda áfram menntaveginn. „Ég þarf að vera fyrirmynd og geta séð fyrir fjölskyldunni í framtíðinni. Ég ætla mér að gera það, ég er staðráðin í því. Ég ætla að mennta mig, þar sem mig langar til þess að ganga vel í framtíðinni.“

Það að eignast tvö börn á unga aldri breytti Steinunni talsvert. „Þetta breytti mér þannig að ég fór loks að taka ábyrgð. Ég var langt því frá að vera ábyrgðarfull manneskja áður en ég átti börn. Mér gekk illa í námi. Ég nennti ekki að læra og mæta í skólann. Ég vissi heldur ekkert hvað mig langaði að gera í framtíðinni. Allt í einu þurfti ég að bera ábyrgð á tveimur litlum manneskjum, heimili okkar og fjölskyldu. Ég var í raun bara unglingur sem fékk níu mánuði til þess að þroskast. Ég veit ekki hvort það er móðureðli eða hvað, en ég hafði allt í einu tilgang til þess að taka ábyrgð.“

Hugsarðu um það að þú sért að missa af einhverju í félagslífinu? „Það kemur alveg fyrir að ég hugsi um það hvað vinkonurnar eru að gera. Maður sér alveg unga foreldra sem eru alltaf á djamminu og í raun eru engar hömlur á mér að mínu mati. Ég fer alveg með mínum vinkonum út ef mig langar. Spurningin er bara hvort mann langi til þess. Mér finnst það persónulega ekki heillandi. Þetta er alltaf eins, ég er ekkert að missa af neinu. Það er nokkuð þroskandi að geta ekki bara gert það sem maður vill þegar mann langar til þess.“

Ungar mæður stimplaðar

Ungar mæður eru oft stimplaðar fyrir ótímabærar barneignir, þær hafi ekki menntað sig og séu jafnvel ekki í traustum samböndum. Steinunn segist vita til þess að ungar mæður fái oft að heyra það úti í samfélaginu að þær ráði ekki við verkefnið. Jafnvel sé komið dónalega fram við þær hjá opinberum stofnunum „Það er litið niður á þær af mörgum, sem er ekki fallegt. Eins og þær séu verri fyrir vikið, bara af því að þær eru ungar.“ Sjálf fékk Steinunn að heyra það á meðgöngunni að þetta yrði henni erfitt. „Ji, ertu ólétt af tvíburum, guð hjálpi þér,“ sagði fólk oft við mig. Ég finn það líka mjög mikið að þegar ég er ein með foreldrum mínum og strákunum að þá er mikið verið að horfa á mig. Mér finnst eins og fólk hugsi að þarna fari einstæð ung móðir,“ en þetta hefur lítil áhrif á Steinunni.

„Ef þú nærð að vera eins og tannstöngull eftir meðgöngu þá ertu algjör hetja. Mér finnst þetta ljót og asnaleg pressa að setja á fólk“

Steinunn segist hafa heyrt það að fólk sé mikið að spá í það hvernig konur líti út eftir barneignir og hversu fljótt þær nái að skafa af sér kílóin. „Ég fékk t.d. að heyra það frá stelpu sem sá mig í Bónus, hvað ég liti nú hræðilega illa út. Ég varð brjáluð, enda þekkti fólk ekkert til aðstæðna minna á þeim tíma. Mér finnst ömurlegt að eftir að maður eignast börn, og hefur engan tíma til þess að spá í annað en að sinna þeim, þá sé verið að spá í því hvernig maður líti út. Það virðist vera aðal málið og maður sér það í öllum fjölmiðlum. Ef þú nærð að vera eins og tannstöngull eftir meðgöngu þá ertu algjör hetja. Mér finnst þetta ljót og asnaleg pressa að setja á fólk. Maður hugsar auðvitað um útlitið en auðvitað er fáránlegt að fólk sé að velta þessu fyrir sér. Annað mál er að hugsa um líkamann og hvað þú setur ofan í þig, en að hugsa til þess að hafa bætt á þig nokkrum kílóum á meðgöngu.“ Steinunn er sjálf dugleg í líkamsræktinni en hún segist hafa farið að hreyfa sig eftir meðgöngu bæði vegna pressu frá samfélaginu og vegna þess að henni vildi líða betur. „Mig langaði alveg að líta út eins og einhver Hollywood stjarna en ég hef alveg fengið það í bakið að setja á mig einhverjar óraunhæfar kröfur,“ viðurkennir hún.

Ráðleggur ungum foreldrum að mennta sig

Vissulega er það erfitt verkefni fyrir foreldra á öllum aldri að ala upp börn. Hvað þá þegar um tvíbura er að ræða. Sem ung móðir þá hefur Steinunn nokkur ráð handa verðandi foreldrum.
„Ég myndi ráðleggja ungum foreldrum að halda sínu striki. Það eru engar hömlur á þér þótt þú eignist barn ungur. Þú þarft vissulega að leggja aðeins meira á þig og skipleggja þig betur. Ég myndi ráðleggja fólki að halda áfram að mennta sig. Það er erfitt að mennta sig með lítil börn en það er vel þess virði held ég. Þegar ég er svo orðin fertug þá á ég tvítuga stráka, það hljómar alveg vel í mínum eyrum,“ segir Steinunn að lokum og brosir.

Ljósmyndir Eyþór Sæmundsson