Bygg
Bygg

Mannlíf

Vantar fleiri „fullorðinsíþróttir“
Sveindís V. Þórhallsdóttir.
Laugardagur 11. apríl 2015 kl. 09:00

Vantar fleiri „fullorðinsíþróttir“

Sveindís V. Þórhallsdóttir vill breyta viðhorfi fólks til heilbrigðis.

Hversu margir ætli hafi styrk til að bera sína eigin líkamsþyngd, upp og niður lóðrétta stöng og hanga jafnvel á hvolfi? Frá því að Sveindís V. Þórhallsdóttir kynntist pole fitness íþróttinni varð ekki aftur snúið. Sveindís 24 ára gömul, fædd og uppalin í Keflavík, æfði fótbolta og kláraði grunnskóla þar áður en leið hennar lá í MH. Vorið 2014 útskrifaðist hún úr Háskóla Íslands með sálfræðigráðu og komst á sama tíma inn í framhaldsnám í íþrótta- og æfingasálfræði við Háskólann í Jyväskylä í Finnlandi. Sveindís er mjög upptekin af líkamsrækt og hreyfingu og kemst fátt annað að í hennar lífi. Pole fitness á hug hennar allan en hún byrjaði að æfa þá íþrótt fyrir ári síðan og veitir, sem einkaþjálfari, ráðgjöf um heilsu og hreyfingu á heimasíðunni www.sveindis.com.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

 Sveindís í æfingunum sem krefjast m.a. mikils liðleika. 

„Súludans kom óorði á pole fitness íþróttina. Þetta er tvennt ólíkt en er enn tabú víða í heiminum eins og S-Ameríku vegna þessa samnefnara, en það er að minnka. Stór pole fitness samtök eru að reyna að gera þetta að ólympíuíþrótt. Fólk almennt gerir sér ekki grein fyrir er hversu hryllilega erfið pole fitness íþróttin er, enda snýst hún algjörlega um að maður geti borið allan sinn þunga um lóðrétt prik og líta samt vel út. Að mestu eru þetta mjög erfiðar styrkleika- og þolæfingar, einnig einföldustu hlutirnir. Svipað og með fimleika krefst þetta mikils liðleika og jafnvel danshæfileika. Þetta er heildræn æfing í einum pakka,“ segir Sveindís full af eldmóði. 

Frétti af pole fitness í gegnum gæsapartý

Sveindís heyrði fyrst af pole-fitness þegar systir hennar fór í gæsapartý fyrir einhverjum árum þar sem boðið var upp á að spreyta sig í íþróttinni. „Hún sagði svo við mig að það hefði verið hrikalega erfitt, hendurnar hefðu næstum slitnað af. Þetta sat alltaf í mér. Fyrir tveimur árum fór kærastinn minn að vinna með stelpu sem var að opna pole fitness aðstöðu í Reykjavík og ég hélt að þetta væri ekkert faglegt en hljómaði skemmtilega og aðstaðan var falleg. Svo í janúar í fyrra ákvað ég að prófa.“ Eftir fyrsta tímann fann Sveindís að hún vildi halda áfram því það heillaði hana svo mikið hvað þjálfarinn sveif um svo sterk og glæsileg. „Mig langaði að verða svona. Ég var komin með fyrirmynd. Eftir það þegar ég fór að læra meira og ná smátt og smátt markmiðum mínum og um leið hvatningu til að halda áfram.“ 

Fólk of upptekið af árangri tengdum útliti

Sveindís er að ljúka alþjóðlegum pole fitness-þjálfararéttindum og mun svo vera á Íslandi í sumar að vinna áður en hún fer aftur til Finnlands í september til að halda áfram meistaranáminu. Að hennar mati vantar í umræðuna um líkamsrækt og lífsstíl mikilvægi þess að vera sterkur, liðugur og líða vel í eigin líkama. „Það skiptir máli til þess að geta tekist betur á við daglegt líf; hlaupið á milli staða, leikið við börnin, borið hluti o.s.frv. Við glötum líka því sem við notum ekki og virkjum ekki,“ segir Sveindís og bætir við að með líkamsrækt ætti áherslan að vera á aukna hreyfigetu, styrkingu og liðleika líkamans. „Því miður eru flestir uppteknir af aðeins einum þætti líkamsræktar - breytingu á útliti. Ef við styrkjum okkur og bætum þá getum gert eitthvað í dag sem við gátum ekki gert í gær; finnum fyrir meiri líkamssátt og auknu sjálfstraust, jafnvel þó útlit okkar breytist ekki mikið.“

Kyrrseta samfélagslega viðurkennd

Sveindísi finnst að það þyrfti í raun að leggja áherslu á það á unga aldri að hreyfing eigi að stuðla að vellíðan og geðheilbrigði. „Þegar við erum börn getum við ekki setið kyrr en er sagt að sitja og vera kyrr, t.d. í skólanum. Með aldrinum missir fólk hreyfigreindina smátt og smátt. Tengingar í heilanum styrkjast við endurtekna hegðun og hugsum og því skiptir máli hvað við venjum okkur á.“ Í meistaranáminu er áherslan íþróttasálfræði á íþróttafólk, frammistöðu og árangur út frá ákveðnum formerkjum. Æfingasálfræði fjallar meira um daglegt líf og venjulegt fólk. Sveindís er hrifnari af henni. 

„Það er svo áhugavert að finna út hvernig hægt er að virkja fólk sem hefur ekki hreyft sig neitt að ráði. Það er t.d. gert með inngripi á vinnustöðum og skoðað hvað hægt er að gera til að fá fólk þar til að hreyfa sig meira; nota stigann í stað lyftunnar og standa upp öðru hverju, jafnvel með áminningu í símanum. Það er svo samfélagslega viðurkennt að sitja við megnið af daglegri iðju. Ef einhver stendur einhvers staðar þá er hann spurður hvers vegna hann fái sér ekki sæti. Þessu þarf að breyta - smátt og smátt og vekja fólk til umhugsunar um hvað það gerir því gott að standa í stað þess að sitja.“ Sveindís segir rannsóknir sýna að ekki sé nóg að fara í ræktina í klukkutíma og sitja svo alla hina klukkutímana. „Það vegur ekki upp á móti, því miður. Það gæti verið sniðugt að hafa einhverja áskorun eða hópefli. T.d. eru margir vinnustaðir farnir að hvetja starfsfólk sitt til að ‘planka’ saman, hafa hjólavikur eða gönguferðir. Búa til stemningu.“ 

Mynd að ofan: Sveindís með kærastanum sínum. 

Sveindís í Finnlandi, þar sem hún stundar meistaranám í íþróttasálfræði. 

Vantar fleiri ‘fullorðinsíþróttir’

Sveindísi finnst ungar konur og fólk yfirleitt leggja of mikið upp úr útliti og að passa of mikið í eitthvað mót. „Við erum fórnarlömb umræðu og auglýsinga, sem er niðurrífandi. Því er mikilvægt að fjallað sé um heilbrigði. Allir sem misst hafa heilsuna vita þetta. Það að vera grannur í fottum fötum skiptir ekki máli. Það er miklu flottara að geta sagt: ég er nógu sterk til að halda mér á hvolfi heldur en að spá í þyngd á vigt. Mér er alveg sama hvað fólk gerir, það á að vera gaman að hreyfa sig.“ Hún bætir við að pole fitness sé eitthvað sem hægt sé að hoppa inn í hvenær sem er. Sama sé ekki með margar íþróttir. „Það skortir fleiri möguleika og fjölbreytni eins og fullorðinsfimleika og aðrar íþróttir sem fólk vill æfa en ekki endilega keppa í. Ég vil spyrja fólk um markmiðin sín og hvað það vill áorka með þeim. Einnig hvort það hefur æft áður og hvað því finnst skemmtilegt. Ánægja er besta hvatningin sem við höfum til að halda áfram. Líka þetta félagslega, eignast hvetjandi vinahóp,“ segir Sveindís. 

Pole fitness snýst algjörlega um að maður geti borið allan sinn þunga um lóðrétt prik 

Langar í klíníska sálfræði

Í gegnum pole fitness er Sveindís í alls kyns spjallhópum og haldnar eru ýmsar keppnir og ráðstefnur um allan heim. Fyrsta Íslandsmótið í pole fitness verður núna í apríl. „Stundum eru konur sem æfa þetta beðnar um að halda sýningar. Súlurnar eru sérhannaðar með færanlegum búnaði, sumar er hægt að taka í sundur og setja ofan í tösku. Fyrir styrktaræfingar og grunnæfingar þarf ekki gríðarlega mikið pláss. Það er hægt að gera þetta heima hjá sér.“ 

Sveindísi er margt til lista lagt, m.a. málaði hún myndirnar fyrir ofan sófann.  

Framtíðaráform Sveindísar eru, samhliða því að æfa og þjálfa pole fitness, að nema klíníska sálfræði. Eftir sálfræðinámið í HÍ langaði hana í meiri reynslu áður. „Ég fékk mikinn áhuga á íþróttum eftir að ég byrjaði í pole fitness og rakst á þessa gráðu, íþróttasálfræði, og sótti um að fara í það nám. Það er ekki hægt að læra hana hér á landi svo að ég fór til Finnlands. Mig langar að leggja mikla áherslu á hreyfingu í framtíðinni í öllu sem ég geri,“ segir Sveindís. 

VF/Olga Björt