Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Valinn fram yfir RAX
Óli Haukur Mýrdal (Ozzo).
Föstudagur 18. apríl 2014 kl. 10:30

Valinn fram yfir RAX

Fólk breytir brúðkaupsdeginum til að bóka Ozzo í tökur.

Óli Haukur Mýrdal starfar sem ljósmyndari hjá Fríhöfninni auk þess sem hann rekur OZZO Photography, sem er fjölbreytt ljósmyndaþjónusta. Óli Haukur hefur víða vakið athygli fyrir myndir sínar og hefur þurft að neita fjölda verkefna vegna mikillar eftirspurnar. Víkurfréttir tóku hann tali um starfið og möguleikana sem tengjast því.

Áhuginn kviknaði í flugnámi
„Það má segja að áhuginn fyrir ljósmynduninni hafi kviknað í kjölfar flugnámsins sem ég stundaði árið 2005. Að vera einn þarna uppi í vélinni með sjálfum sér og njóta útsýnisins gaf mér alveg nýja sýn á ljósmyndun,“ segir Óli Haukur og að ævintýrið hafi í raun byrjað skömmu síðar þegar hann keypti myndavél, Canon 400D slr. „Þá fór ég að mynda allt og alla og árið 2006 skráði ég mig í nám í ljósmyndun í New York. Tveimur árum síðar fékk ég verkefni frá auglýsingastofum og viðburðafyrirtækjum og kominn á fullt skrið í atvinnumennskuna.“ Í dag notast Óli Haukur við léttar og góðar vélar sem henta í flest öll verkefni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Gosið á Fimmvörðuhálsi.

Sting fékk landslagsmyndir á veggina
Óli Haukur hefur komið að mörgum spennandi verkefnum með samstarfsaðilum síðustu ár. Má þar nefna Johnnie Walker, True North Productions, Lazytown International, Amazing Race, Red Bull, Paradox Interactive og fleiri aðila. Söngvarinn Sting er mikill Íslandsvinur og hann leigði veiðihús hér á landi um tíma og vildi hafa myndir úr íslenskri náttúru á veggjum hússins. „Valið stóð á milli mynda frá mér og RAX og mínar voru valdar. Það var mikil heiður“.



Breyta brúðkaupsdeginum til að bóka ljósmyndara
Spurður um uppáhaldsmyndefni segir Óli Haukur fjölbreytileikann vera skemmtilegastan. „Að fá að skapa sinn eiginn heim í kringum viðfangsefnið, hvort sem það er landslag eða portrait, ferðast og hitta fólk og skoða ólíka menningarheima.“ Hluti af starfi Óla Hauks er að flakka heimshorna á milli og hann var m.a. í bresku Kólumbíu á ljónaveiðum í desember. Einnig stendur til að fara til Afríku í maí en verkefnin komi oft með stuttum fyrirvara. „Ég vinn náið með ferðaskrifstofum á Íslandi og fer mikið í hvataferðir. Ég var fullbókaður í brúðkaupsmyndatökur sumarsins fyrir nokkrum mánuðum síðan og sérhæfi mig mikið í þeim. Ég vil gera eitthvað sérstakt fyrir hvern og einn og legg mikinn metnað í það,“ segir hann. Einnig sé hann mikið bókaður í fermingar- og árshátíðarmyndatökur. „Ég vil frekar taka færri verkefni að mér og gera þau vel. Fólk hefur verið að breyta brúðkaupsdögum sínum til að ég geti myndað stóra daginn,“ segir Óli Haukur hreykinn.  

Yfirlitsmynd af Reykjanesbæ tekin með fjarstýrðu þyrlunni.

Þyrlan býður upp á mikla möguleika
Fyrir skömmu festi Óli Haukur kaup á fjarstýrðri þyrlu sem hægt er að festa ljósmyndunarbúnað á. Hann segir þá tækni bjóða upp á endalausa möguleika hvað varðar ljósmynda- og kvikmyndatökur. „Það yrði gaman að láta reyna á markaðssetningu hjá stóru kvikmyndafyrirtækjunum hérna heima.“ Hann segir mikla vöntun eftir slíkri þjónustu því hún sé mikið ódýrari en að leigja þyrlur. Þyrlan hans komist í 1200-1500 fet og stærri þyrlur enn hærra. Einnig sé hægt að búa til hnitaprógram í GPS kerfi sem auðveldi ýmislegt. Nýlega tók hann loftmyndir af Reykjanesbæ í ljósaskiptunum með þyrlunni. „Mig hefur alltaf langað til að sjá bæinn okkar frá öðru sjónarhorni og það getur verið mjög erfitt að taka myndir að kvöldi, þá verða meiri líkur á hreyfðum myndum. Því notaðist ég við Sony RX-100 compact myndavél með mjög ljósnæmri linsu á fjögurra hreyfla þyrlu sem getur stillt sig af með GPS tækninni. Þannig náði ég skýrum og óhreyfðum myndum.“

Sólsetur við Garðskagavita.


Bræðurnir vinna saman
Fjölbreytileiki starfs Óla Hauks býður upp á alls kyns ævintýri hingað og þangað og í stúdíói þess á milli. Garðar, bróðir hans, er að klára nám við Kvikmyndaskóla Íslands og hefur verið með honum í nokkrum verkefnum sem snúa að myndbandagerð. Bræðurnir hafa tekið upp og klippt brot af því besta í brúðkaupum, árshátíðum og slíku. Það hafi vakið mikla lukku. „Æ meiri kröfur eru gerðar til þess að bæði séu teknar ljósmyndir og myndbönd. Og helst að öllu sé skilað á sem skemmstum tíma. Ef við tökum upp fjölmennar árshátíðir á laugardegi þá reynum við að skila af okkur efninu á hádegi á mánudegi,“ segir Óli Haukur. „Við reynum að gera hlutina vel og vera með snögga og góða þjónustu. Það skiptir miklu máli. Því ég er á fullu alla daga og öll kvöld, á milli þess sem ég tek myndir fyrir sjálfan mig af norðurljósum og slíku. Svo á ég konu og þrjú börn og reyni því að skammta tímann eftir bestu getu,“ segir Óli Haukur hlæjandi að lokum.
 

Bergið.

Við Gígjökul.

Bláa lónið.

VF/Olga Björt