Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Valdimar rafmagnslausir á Norðurpólnum
Miðvikudagur 6. apríl 2011 kl. 15:45

Valdimar rafmagnslausir á Norðurpólnum

Fimmtudaginn 7. apríl næstkomandi er komið að öðrum tónleikunum í „Rafmagnslaust á Norðurpólnum.“ Í þetta sinn koma fram krakkarnir í Valdimar og Lára Rúnars, poppsöngkona. Tónleikarnir fara fram í leikhúsinu Norðurpólnum í Reykjavík.

Keflvíska Hljómsveitin Valdimar hefur heldur betur rutt sér til rúms síðan þeirra fyrsta plata, Undraland, kom út fyrir síðustu jól. Platan er sem stendur sú söluhæsta á gogoyoko og þá hefur söngvari hljómsveitarinnar, Valdimar Guðmundsson, hlotið verðskuldaða athygli fyrir söng með Memfismafíunni í laginu ‘Okkar eigin Osló’ úr samnefndri kvikmynd.

Lára Rúnars er poppprinsessa Íslands. Ferill hennar er á fleygiferð en hún vinnur nú að sinni fjórðu plötu. Hún hefur vakið mikla athygli erlendis á síðustu mánuðum.

Miðaverð er 1500 krónur og fæst 10% afsláttur í Lucky Records við Hverfisgötu gegn framvísun miðans. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21 og opnar húsið kl. 20 en Norðurpóllinn er staðsettur að Sefgörðum 3, úti við Gróttu, en þar var áður til húsa plastverksmiðjan Borgarplast.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Valdimar spiluðu í leikhlé í 4. leik Keflavíkur og KR á dögunum


EJS