Valdimar og Örn með tónleika í Frumleikhúsinu
Flytja lög sem mótuðu þá í æsku.
Söngvari ársins, Valdimar Guðmundsson og vinur hans og gítarleikarinn Örn Eldjárn verða með tónleika í Frumleikhúsinu annað kvöld. Þar ætla þeir að flytja lög sem mótuðu þá í æsku. „Við ætlum að gera þetta eins stórt og mögulegt er miðað við að vera bara tveir og með einn gítar. Baritóngítarinn er með fullt af effektum og hljóðum sem gera stórt og mikið sánd. Það passar vel við stóra og mikla rödd,“ segir Valdimar. Meðal efnis á tónleikunum verða lög með Megasi, Bob Dylan, Radiohead og Arcade. „Hellingur af góðu stöffi. Tónlist sem við eigum miklar rætur til.“
Nánar um viðburðinn hér og í Víkurfréttum á morgun.