Valdimar og Jana með Sönghópi Suðurnesja á jólatónleikum
Hátíð í bæ var yfirskrift árlegra jólatónleika Sönghóps Suðurnesja undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar en tónleikarnir fóru fram í Hljómahöllinni í síðustu viku.
Með hópnum sungu þau Valdimar Guðmundsson og Jana María Guðmundsdóttir. Hópurinn hefur æft vel að undanförnu og á söngdagskránni voru mörg skemmtileg og þekkt jólalög. Ljósmyndari Víkurfrétta smellti af meðfylgjandi myndum á tónleikunum.
Valdimar fór á kostum að venju.
Sönghópur Suðurnesja hefur undanfarin ár verið undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar, tónlistarmans úr Keflavík.