HSS
HSS

Mannlíf

Valdimar á vinsælasta lag landsins
Laugardagur 15. janúar 2011 kl. 20:10

Valdimar á vinsælasta lag landsins

Tónlistarlífið á Suðurnesjum er aldeilis í blóma um þessar mundir. En samkvæmt nýjum vinsældarlista Rásar 2 þá eru vinsælustu lögin úr röðum Suðurnesjasveitanna Valdimar sem vermir toppsætið með lagið Undraland aðra vikuna í röð síðan er það  Klassart sem situr í öðru sæti þessa vikuna með lag sitt Þangað til það tekst.  Bæði þessi lög hafa verið í sjö vikur á listanum og hljómað ótt og títt á öldum ljósvakans. Bjartmar og Bergrisarnir eru svo í fjórða sæti með lagið Kona á allt og Lifun er svo loks í 18. sæti með lagið Fögur fyrirheit.

Allar þessar hljómsveitir sem eru á mála hjá útgáfufyritækinu Geimsteini, hafa verið tíðir gestir á lista Rásar 2 að undanförnu. Hljómsveitir útgáfunnar Lifun, Klassart og Bjartmar og Bergrisarnir áttu fyrstu fjögur sætin á tímabili síðasta sumar og listamenn frá Geimsteini áttu m.a toppsætið á listanum sjö vikur í röð um sumarið. Krakkarnir í Valdimar hafa svo verið að gera það gott síðan plata þeirra Undraland kom út skömmu fyrir jól.

„Þetta var svakalegt sumar,“ sagði Björgvin Ívar Baldursson upptökustjóri hjá Geimsteini þegar við náðum tali af kappanum. „Gengið hjá Valdimar er náttúrlega æðislegt, mig óraði ekki fyrir þessu þegar ég sá þá hérna fyrst á Paddy's. Þó vissi ég að þarna væri hljómsveit sem ætti framtíðina fyrir sér á ferðinni,“ bætti Björgvin svo við.

Hér má svo skoða listann og kjósa sín eftirlætislög.

Myndir: Að ofan er hljómsveitin Valdimar á tónleikum. Neðri mynd f.v: Pálmar, Smári og Fríða Dís Guðmundsbörn úr Klassart, Júlíus Guðmundson frá Geimsteini og svo Björgvin Ívar Baldursson sem starfar hjá Geimsteini en er einnig meðlimur í Klassart.


EJS


Bílakjarninn
Bílakjarninn