Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Valdimar á trúnó í Hljómahöll
Mánudagur 21. ágúst 2023 kl. 13:49

Valdimar á trúnó í Hljómahöll

Hljómahöll hefur ákveðið að endurvekja tónleikaröðina Trúnó en tónleikaröðin hefur haldið sig til hlés frá því að heimsfaraldurinn skall á. Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við listamennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtónleikum í litlum sal.

Sú hljómsveit sem ríður á vaðið ætti að vera bæjarbúum og öllum landsmönnum kunnug en það er hin frábæra hljómsveit Valdimar. Sveitin mun koma fram á tvennum tónleikum miðvikudagskvöldið 30. ágúst og fimmtudagskvöldið 31. ágúst á meðan Ljósanótt stendur yfir en þetta verður í fyrsta sinn sem sveitin kemur fram á tónleikaröðinni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Á fyrri trúnó-tónleikum sveitarinnar mun hljómsveitin leika öll lögin af plötunni sinni Undraland sem kom út árið 2010. Á seinni tónleikum sveitarinnar mun hljómsveitin taka fyrir plötuna Um stund sem kom út árið 2012.

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00.